Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sérdeilis raunveruleg dúkka talin liðið lík

Read Full Article →

Afar raunveruleg dúkka í fullri stærð sem fannst í ferðatösku við ástralskan þjóðveg var um stund talin fórnarlamb morðingja. Tveir menn óku í gærkvöld fram á ferðatöskuna þar sem hún lá við þjóðveg nærri þorpinu Oallen um 230 kílómetra suðvestan við stórborgina Sydney. Þeim brá verulega í brún við að sjá innihaldið, síðhærða konu með hring í nefinu og áverka sem bentu til ofbeldis. Snemma í morgun tilkynnti lögregla í Hume-umdæmi að morðrannsókn væri hafin, sem vakti mikla athygli almennings og fjölmiðla. Aðeins örfáum klukkustundum síðar var tilkynnt að rannsókninni væri lokið, réttarmeinarannsókn hefði leitt í ljós að líkamsleifarnar hefðu aldrei verið lifandi. „Innihald töskunnar var afar raunveruleg, fullklædd dúkka með hring í nefi og tilbúnar skrámur og marbletti,“ segir í tilkynningu lögreglunnar í Hume. Lögregluforinginn Linda Bradbury segir viðbrögð allra mjög skiljanleg enda hafi dúkkan haft allt yfirbragð manneskju. Hún sagði öllum verklagsreglum hafa verið framfylgt við rannsóknina, enda megi ekki raska glæpavettvangi meö nokkrum hætti. Þeir sem fundu töskuna hefðu líka brugðist rétt við og verði látnir vita hið sanna. Rannsókn málsins er lokið.

Share this article