Akureyrarbær Eldur kviknaði í rútu á Akureyri Bílstjóri rútu komst óhultur út úr henni eftir að eldur kviknaði í vélarrými. Engir farþegar voru um borð. Grétar Þór Sigurðsson 10. ágúst 2026 kl. 09:00, uppfært kl. 09:24 A A A Slökkvibíll slökkviliðsins á Akureyri. RÚV – Bjarni Rúnarsson Eldur kviknaði í rútu SBA Norðurleiðar á Akureyri í dag. Hún var á ferð, austur eftir Tryggvabraut, þegar eldur kviknaði í vélarrýminu aftast í rútunni. Engir farþegar voru um borð og bílstjóri hennar einn á ferð. Hann komst óhultur út. Guðjón Páll Sigurðarson, vakthafandi varðstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri, segir eldinn hafa verið töluverðan. Slökkviliðið náði fljótt tökum á honum. Tilkynning barst slökkviliðinu um klukkan hálf níu. Búið var að slökkva eldinn skömmu fyrir níu. Einn dælubíll var sendur á vettvang og allir slökkviliðsmenn á vakt. Rútan var í næsta nágrenni við bensínstöðina Olís við Tryggvabraut. Guðjón segir að eldurinn hafi ekki ógnað bensínstöðinni, né öðrum byggingum eða bílum. Fréttin hefur verið uppfærð. Vinnureglur um fréttir og dagskrárefni RÚV er óháð hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð okkar byggist á trúverðugleika og óhlutdrægni. Starfsfólk RÚV starfar samkvæmt vinnureglum um fréttir og dagskrárefni. Meira frá RÚV Innrás í Úkraínu Árásir Úkraínuhers á meðal þeirra mannskæðustu frá upphafi stríðs Bandaríkin Gríðarmikið undir í umfangsmiklum málaferlum gegn Meta Lögreglumál Nokkrir handteknir vegna manndráps á Kársnesi Sund Fyrstu Íslendingarnir kepptu á EM í sundi í morgun Rússland Óvíst um framboð eina flokksins sem er andvígur stríðinu í Úkraínu Sólmyrkvi 2026 Veðrið yfir sólmyrkvann að skýrast Veður Bjart veður með hita að 19 stigum Frjálsar Í góðri stöðu til að gera vel á EM Kanada Kona um áttrætt lét lífið í skógareldunum í Bresku Kólumbíu Mest lesið á RÚV.is 1 Lögreglumál Nokkrir handteknir vegna manndráps á Kársnesi 2 Jafnrétti „Ég get þetta ekki lengur“ segir ungt kvár sem var grýtt eftir gleðigöngu Hinsegin daga 3 Popptónlist Upplifði hrikalegan kokteil kulnunar og lyfjafráhvarfa 4 Samfélag „Það er ekki hægt að mætast í miðjunni þegar kemur að lífi fólks“ 5 Ísrael-Palestína Ísraelsmenn hafna friðaráætlun Trumps 6 Sólmyrkvi 2026 Veðrið yfir sólmyrkvann að skýrast Fleiri innlendar fréttir Veður Bjart veður með hita að 19 stigum Leit og björgun Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann að Háafossi Sólmyrkvi 2026 Veðrið yfir sólmyrkvann að skýrast Sólmyrkvi 2026 Aldrei fleiri skemmtiferðaskip við Ísland en verða á sólmyrkvadaginn Lögreglumál Nokkrir handteknir vegna manndráps á Kársnesi Samfélag „Það er ekki hægt að mætast í miðjunni þegar kemur að lífi fólks“ Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Forsætisráðherra boðar fundaröð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Reykjavíkurborg Einn fluttur á slysadeild eftir að bifhjól lenti á vegriði Aðrir eru að lesa núna 1 Innrás í Úkraínu Árásir Úkraínuhers á meðal þeirra mannskæðustu frá upphafi stríðs 2 Bandaríkin Gríðarmikið undir í umfangsmiklum málaferlum gegn Meta 3 Sólmyrkvi 2026 Veðrið yfir sólmyrkvann að skýrast 4 Bretland Burnham heitir úrræðum til að losa fólk úr „áskriftargildrum“ 5 Lögreglumál Nokkrir handteknir vegna manndráps á Kársnesi 6 Veður Bjart veður með hita að 19 stigum