Um klukkan níu í gærkvöldi voru allar björgunarsveitir í Árnessýslu kallaðar út vegna ferðamanns sem hafði slasast á fæti við Háafoss. Maðurinn var einn á ferð og slasaðist í gilinu neðan við fossinn. Þar var ekkert símasamband en annar hópur ferðamanna sem gekk fram á manninn óskaði aðstoðar eftir að hafa fært sig um set og komist í símasamband. Frá þessu greinir Slysavarnafélagið Landsbjörg í tilkynningu. Ekki er vitað hversu langt var síðan maðurinn slasaðist þegar gengið var fram á hann. Ljóst var að það yrði krefjandi verkefni að koma manninum úr gilinu. Því var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar einnig boðuð á vettvang. „Þegar þyrla var komin á staðinn varð ljóst að hið minnsta þyrfti að flytja manninn til svo hægt væri að hífa hann í þyrluna. Þá var ákveðið að boða út undanfara björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu og fór þyrlan aftur til Reykjavíkur, til að taka eldsneyti og flytja undanfara á svæðið.“ Tuttugu manna hópur björgunarmanna úr björgunarsveitum í Árnessýslu hafði komist að manninum þegar klukkan var hálf eitt eftir miðnætti. Þeir fluttu manninn á börum að sjúkrabíl. Verkefninu lauk um klukkan tvö í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er maðurinn trúlega fótbrotinn. Kobbi Láka sótti fiskibát í vanda Upp úr klukkan fimm í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá litlum fiskibát út af Hlöðuvík á Hornströndum með ósk um aðstoð við að komast í land. Áhafnir tveggja björgunarskipa voru boðaðar út en útkall annarrar áhafnarinnar var síðar afturkallað. Kobbi Láka frá Bolungarvík hélt úr höfn upp úr klukkan hálf sex í morgun og var kominn að fiskibátnum um klukkustund síðar. „Við tók róleg sigling til baka til Bolungarvíkur, þangað sem skipin voru að koma nú rétt upp úr hálf tíu,“ segir í tilkynningu Landsbjargar.