Sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar hafa fundið lítinn skemmtibát sem leitað var að um hádegisbilið í dag. Hann lagði úr höfn í Reykjavík rétt fyrir klukkan 10 með tvo um borð og ekkert hafði heyrst frá skipverjum í töluverðan tíma. Báturinn fannst loks úti af Syðra Hrauni. Vísir greindi fyrst frá leitinni. Leitin var orðin afar umfangsmikil þegar loks heyrðist frá þeim sem voru um borð skömmu eftir klukkan 12:30, segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Flugvél gæslunnar, TF-SIF, var notuð við leitina ásamt björgunarskipi og þyrlan var við það að fara af stað þegar fólkið lét vita af sér. Kom ekki auga á bátinn Litlum skemmtibátum er ekki skylt að vera með sjálfvirkan staðsetningarbúnað. Ásgeir segir að venja sé að sjófarendur láti venjulega vita af ferðum sínum á um klukkutíma fresti. Eftir að ekkert heyrðist frá bátnum í lengri tíma var reynt að hafa samband við hann á rás 16. Ásgeir segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kalla út björgunarsveitir eftir að áhöfn flugvélar gæslunnar, TF-SIF, kom ekki auga á bátinn. Ekkert svar barst og því var flugvél gæslunnar, TF-SIF, sem var á leiðinni í eftirlitsflug, fengin til að fljúga yfir sundin og grennslast fyrir um bátinn. Ásgeir segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kalla út björgunarsveitir eftir að áhöfn TF-SIF kom ekki auga á bátinn. Fréttin hefur verið uppfærð.