Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir uplýsingar landlæknis um sólmyrkvann rangar

  • What: Misleading sun protection information from Icelandic health authority
  • Impact: Public may receive incorrect advice on eye protection
Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.8.2026 | 14:14 Segir uplýsingar landlæknis um sólmyrkvann rangar Sævar Helgi Bragason hefur verið duglegur að bira myndefni á samfélagsmiðlum þar sem hann útskýrir hvernig eigi að nota sólmyrkvagleraugu. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/María Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Öll hótel uppbókuð og engir bílaleigubílar eftir Biðja íbúa að varast ljósmengun „Eins og hendi væri veifað skellur skugginn á“ Sólmyrkvi og dularfulla tunglfjallið Útlit fyrir að skýjað verði þann 12. ágúst » Fleiri tengdar fréttir Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir upplýsingar um notkun sólmyrkvagleraugna á vef embættis landlæknis rangar, en þar hafa verið birtar afar misvísandi leiðbeiningar um öryggi og augnheilsu við sólmyrkvann. Nú styttist óðum í 12. ágúst þegar almyrkvi verður á sólu á Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Landsmenn hafa margir orðið sér úti um svokölluð sólmyrkvagleraugu til þess að fylgjast með deildarmyrkvanum sem verður bæði fyrir og eftir sjálfan almyrkvann. Frétt af mbl.is Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Réttar og rangar upplýsingar á vef landlæknis Á vef embættis landlæknis segir annars vegar að nota þurfi sólmyrkvagleraugu við allan deildarmyrkvann, bæði fyrir og eftir almyrkvann, sem er rétt. Þar fyrir neðan er hins vegar fjallað um að við almyrkvann setji maður gleraugun upp og alltaf skuli gera hlé á áhorfi á sólina, sem er rangt. „Þegar þú ætlar að fylgjast með almyrkva setur þú gleraugun fyrst á þig, horfir í nokkrar sekúndur og lítur síðan undan. Þetta ferli er síðan hægt að endurtaka en alltaf gera hlé inn á milli,“ segir á vefnum. Stjörnu-Sævar segir þessar upplýsingar rangar en margoft hefur verið fjallað um það að sólmyrkvagleraugu séu ekki nauðsynleg meðan á almyrkvanum stendur. Meðan á almyrkvanum stendur segir hann öruggt að horfa á sólina. „Þá sérðu kórónu sólarinnar í kringum sólina og hún er ekkert hættuleg. Hún er aðeins daufari en fullt tungl og ég veit ekki til þess að neinum sé ráðlagt að horfa ekki á fullt tungl,“ segir Sævar við mbl.is. „Við deildarmyrkvann ertu með gleraugun og eingöngu þá með gleraugun, þess á milli ertu ekki með gleraugu á höfðinu því við almyrkva máttu horfa á almyrkvann án gleraugna allan tímann algjörlega án þess að taka nokkurt hlé þar á milli.“ Spurður hvort nauðsynlegt sé að gera hlé inn á milli þess sem maður horfi á deildarmyrkvann svarar Sævar því neitandi. „Nei, það er ekkert hættulegt að stara á þetta allt allan tímann í gegnum gleraugun.“ Sævar Helgi hefur verið duglegur að birta myndefni á samfélagsmiðlum þar sem hann útskýrir hvernig eigi að nota sólmyrkvagleraugu og hvenær, en hann heldur einnig úti vefnum solmyrkvi2026.is þar sem hinar ýmsu upplýsingar má finna um sólmyrkvann. @stjornusaevar Hvernig á að nota sólmyrkvagleraugu? Og hvernig nota börn þau? Hvað ef maður er með venjuleg gleraugu fyrir? Þetta er líklega mikilvægasta fræðsluvídeóið fyrir fegurstu sýningu náttúrunnar. Allt um myrkvann á solmyrkvi2026.is @Iceland at Night / eclipse2026 #solmyrkvi2026 #solmyrkvi #solmyrkvagleraugu ♬ original sound - Sævar Helgi Bragason Tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Öll hótel uppbókuð og engir bílaleigubílar eftir Biðja íbúa að varast ljósmengun „Eins og hendi væri veifað skellur skugginn á“ Sólmyrkvi og dularfulla tunglfjallið Útlit fyrir að skýjað verði þann 12. ágúst » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mikið áfall fyrir unga Svíann Vertíðin sögð byrja ljómandi vel Segir uplýsingar landlæknis um sólmyrkvann rangar Já til að sjá, en hvað lokast? Danski fyrirliðinn hafnar Newcastle Umræðan Skaðleg samúð Hvað heldur eiginlega dyrunum opnum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Stórstjarna snæddi á Horninu Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ „Eins og hendi væri veifað skellur skugginn á“ Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Loka húsnæðinu vegna myglu Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Andlát: Wilhelm Wessman Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Allur vafi túlkaður í aðra áttina Vara við hávaða herflugs Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Mikið áfall fyrir unga Svíann Vertíðin sögð byrja ljómandi vel Segir uplýsingar landlæknis um sólmyrkvann rangar Já til að sjá, en hvað lokast? Danski fyrirliðinn hafnar Newcastle Umræðan Skaðleg samúð Hvað heldur eiginlega dyrunum opnum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Já til að sjá, en hvað lokast? „Ekkert að frétta“ af rannsókninni Rannsaka manndráp á Kársnesi „Eins og hendi væri veifað skellur skugginn á“ Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Loka húsnæðinu vegna myglu Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Andlát: Wilhelm Wessman Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Allur vafi túlkaður í aðra áttina Vara við hávaða herflugs Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“

Share this article