- What: Difficulty in verifying food labels online
- Impact: Consumers may face challenges with product transparency
Sífellt erfiðara er að sinna eftirliti með merkingum matvæla og algengt er að vörur í netverslunum séu ekki rétt merktar, segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Í síðustu viku var fjallað um fæðubótarefnið Pre-Workout. Ábendingar hafa borist um að unglingar hafi leitað til læknis vegna koffíneitrunar eftir neyslu slíkra fæðubótarefna. Þau eru markaðssett sem heilsueflandi, sögð auka úthald á æfingum og bæta endurheimt en einn skammtur getur innihaldið allt að 330 milligrömm af koffíni. Í einum kaffibolla eru um hundrað milligrömm. Virkilega flókið að sinna eftirliti á netinu Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sinna reglubundnu eftirliti með því að lögum um merkingar og sölu sé framfylgt. Þá er bæði farið í eftirlitsferðir í verslanir og eins eru vefsíður yfirfarnar. „En ábyrgðin er auðvitað hjá framleiðendum og það gilda náttúrulega mjög skýrar kröfur um merkingar matvæla,“ segir Hörður. Vörur á borð við Pre-Workout eru ekki einungis seldar í matvörubúðum. Mikið framboð er á netinu og Hörður segir það flækja eftirlit verulega. Söluaðilar birti oft ekki þær upplýsingar sem þeim beri að gera. „Það eru alveg sömu kröfur þar í sölunni. Þannig að þetta er bara mjög erfitt að halda utan um og krefst töluverðrar yfirlegu starfsfólks að fylgja þessu eftir.“ Áhyggjur vegna fyrirhugaðra breytinga stjórnvalda Margar ábendingar berast um mögulega annmarka á merkingu vara. Tugir eru innkallaðir í hverri viku og framleiðanda er gefinn kostur á að endurmerkja vöru. Í sumum tilfellum er þeim fargað. Hörður segist hafa áhyggjur af eftirliti vegna fyrirhugaðra breytinga stjórnvalda á matvælaeftirliti. Með frumvarpi sem Alþingi samþykkti í júní verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlitsins í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar. „Núna er náttúrulega þetta eftirlit að færast alfarið undir stofnun atvinnuveganna og það verður auðvitað spennandi að sjá hvernig ríkisvaldið ætlar að taka á þessu í framtíðinni,“ segir Hörður. Starfsfólk Heilbrigðiseftirlitsins sé áhyggjufullt yfir því að með breytingunum verði eftirlit með innihaldsmerkingum mögulega stærra vandamál í framtíðinni.