Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hægir á verðbólgu í Kína

  • What: China's inflation rate rose slightly in July
  • Impact: Economic analysts are monitoring the trend
Read Full Article →

Vísitala neysluverðs í Kína hækkaði um 0,5% í júlí samkvæmt tölum frá kínversku hagstofunni. Þetta kemur fram á vef WSJ en hagfræðingar sem miðillinn ræddi við höfðu gert ráð fyrir 0,8% hækkun. Kjarnaverðbólga, sem tekur ekki sveiflukennda liði eins og matvæla- og orkuverð með í reikninginn, mældist 0,9% samanborið við 1% í júní. Kínverska hagstofan segir að minni verðhækkanir á eldsneyti hafi átt stóran þátt í hjöðnun á verðbólgu. Framleiðsluverð hækkaði einnig minna en sérfræðingar bjuggust við en sú vísitala hækkaði um 3,5% milli mánaða. Hagfræðingar spáðu 3,9% hækkun en vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 4,1% í júní. Sjá einnig Sprungur farnar að myndast í kínverska hagkerfinu Á sama tíma hefur dregið úr hagvexti í landinu en hagvöxtur í Kína á öðrum ársfjórðungi þessa árs var sá minnsti í rúm þrjú ár. Aukinn vöruútflutningur, meðal annars vegna eftirspurnar eftir gervigreind, hefur ekki dugað til að vega upp á móti veikri innlendri eftirspurn og minnkandi einkaneyslu. Stjórnvöld gáfu til kynna í síðasta mánuði að þau myndu auka ríkisútgjöld til að örva hagkerfið en sérfræðingar segja að nokkrir mánuðir gætu liðið þar til hægt verði að meta áhrif þeirra aðgerða.

Share this article