Innlent | mbl | 10.8.2026 | 20:30 Kaupa stöðvar og steina fyrir Borgarlínuna Um það bil svona verður ásýnd Borgarlínustöðvanna. Setja bókamerki Tengdar fréttir Borgarlínan Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Borgarlínustöðvar boðnar út » Fleiri tengdar fréttir Betri samgöngur hafa gert tvo efniskaupasamninga vegna uppbyggingar fyrstu lotu Borgarlínu. Fram kemur í tilkynningu að annar samningurinn snúi að framleiðslu og afhendingu á 26 borgarlínustöðvum og hinn að kaupum á steinum sem notaðir verða við gerð stöðva, brautarpalla og aðliggjandi almenningsrýma. Heildarsamningsverð fyrstu lotunnar er um 10,25 milljónir evra án virðisaukaskatts eða tæpur einn og hálfur milljarður íslenskra króna. Innkaupin voru boðin út á Evrópska efnahagssvæðinu. Undir kostnaðaráætlun Það er danska fyrirtækið HMS Industri A/S sem samið var við um framleiðslu og afhendingu á stöðvunum 26. Samningsverð stöðvanna fyrir fyrstu lotu er um 1,1 milljarður króna en í tilkynningunni er upphæðin sögð vera aðeins 73% af kostnaðaráætlun. Samningurinn er rammasamningur og felur því í sér möguleika á frekari kaupum í framtíðinni. Samið var síðan við annað danskt fyrirtæki, Zurface A/S, um framleiðslu og afhendingu á granít- og basaltsteinum. Efnin verða meðal annars notuð í yfirborðsfrágang, kanta, rampa og brautarpalla Borgarlínustöðva, auk aðliggjandi almenningsrýma. Samningsverð steinefnanna er um 376 milljónir króna og nemur það um 82% af kostnaðaráætlun. Fyrsta lota Borgarlínunnar mun liggja á milli Ártúnshöfða í Reykjavík og Hamraborgar í Kópavogi og er um 15 kílómetrar að lengd. Mikilvægur áfangi Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnisstofu Borgarlínunnar, segir samningana mikilvægt skref. Verið sé að kaupa öll götugögn í stöðvar fyrir fyrsta og jafnframt stærsta áfanga Borgarlínunnar. Stöðvarnar verða heilt yfir nokkuð einsleitar. „Það eru að vísu nokkrar týpur, til dæmis gerum við ráð fyrir lengri stöð við Þjóðarhöllina og á Suðurlandsbraut þar sem tekið verður við miklum fjölda fólks,“ segir Atli. Varðandi steinefnin segist Atli skilja forvitni sumra varðandi innflutning á byggingarefnum til landsins. Hugsa um líftímakostnað „Við gerum kröfu um það besta sem völ er á, eins og til dæmis kantsteina á stöðvum þar sem vagnarnir munu leggjast þétt upp að. Það þarf að vera með góða endingu þannig að við erum að hugsa um líftímakostnað,“ segir Atli. Hann bætir við að það sé þó alltaf markmiðið að sækja í íslenskt efni. Efnið sem pantað er að utan segir hann mjög lítið hlutfallslega. Fyrsta stöðin verður sett upp á Nauthólsveginum við HR og segir Atli að nú sé beðið eftir síðustu leyfunum áður en hægt verður að hefjast handa við framkvæmdirnar. Við uppsetningu fyrstu stöðvarinnar koma menn frá Danmörku sem munu kenna verktökum hérlendis hvernig best sé að setja upp stöðvarnar. Hinar stöðvarnar verða settar upp af íslenskum aðilum. Tengdar fréttir Borgarlínan Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Borgarlínustöðvar boðnar út » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Svíar sparka Rússum úr landi Eigandi Forest lögsækir Crystal Palace Netverjar gapandi yfir nýjasta rétti Brooklyn Beckham Fram - KR, staðan er 1:3 Markmiðið ekki að sjá hvað er í boði Umræðan Skaðleg samúð ESB er bákn en Ísland er einstakur demantur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók „Eins og hendi væri veifað skellur skugginn á“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Allur vafi túlkaður í aðra áttina Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nýjast á mbl.is » Svíar sparka Rússum úr landi Eigandi Forest lögsækir Crystal Palace Netverjar gapandi yfir nýjasta rétti Brooklyn Beckham Fram - KR, staðan er 1:3 Markmiðið ekki að sjá hvað er í boði Umræðan Skaðleg samúð ESB er bákn en Ísland er einstakur demantur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Já til að sjá, en hvað lokast? Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni „Ekkert að frétta“ af rannsókninni Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Allur vafi túlkaður í aðra áttina Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Fleiri en einn í haldi vegna manndráps