Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.8.2026 | 23:15 Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Ekki hægt að hafa stjórn á Evrópudómstólnum Markmiðið ekki að sjá hvað er í boði Beint: Baudenbacher ræðir Ísland og ESB Meirihluti fyrirtækja í SA andvígur aðild að ESB » Fleiri tengdar fréttir Íslenska þjóðin er klofin í herðar niður í afstöðu sinni gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu að mati Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins. „Það er orðið þannig að hér geta fjölskyldur varla hist, ég hitti kennara í síðustu viku sem sagðist ekki geta hitt móðurfjölskyldu sína, börn eru hætt að geta hitt foreldra sína vegna þess að fólk hnakkrífst og það nennir þessu ekki,“ sagði Guðrún í Silfrinu á RÚV fyrr í kvöld. Í þættinum tókust formenn stjórnmálaflokkanna á Alþingi á um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu að nýju. Frétt af mbl.is Hnífjafnar fylkingar jás og neis Margir óákveðnir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sagði stöðuna tæpa á aðra hvora vegu. Margir séu enn óákveðnir í afstöðu sinni og sá hópur gæti ráðið úrslitum þann 29. ágúst. „Ég held að það muni mikið gerast á næstu dögum og næstu vikum, ég held að það hafi verið gott að við höfum fengið smá tíma núna yfir sumarið, fengið smá fjarlægð frá hinu daglega amstri og hefðbundinni pólitískri umræðu,“ sagði Kristrún, sem boðaði í gær til hringferðar um landið þar sem hún hyggst hitta kjósendur. Hún sagðist ánægð með umræðuna hingað til og fagnar því að aðrir en stjórnmálamenn láti sig málið varða. „Svona á umræða um svona mál að vera því þetta er ekki bara flokkspólitískt mál, þetta er mál sem varðar alla þjóðina.“ Frétt af mbl.is Færri kostir við aðildarviðræður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Verðmæt umræða Eins og áður sagði telur Guðrún Hafsteinsdóttir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu kljúfa þjóðina. Jafnframt telur hún tímasetningu atkvæðagreiðslunnar hafa verið gaumgæfilega valda af ríkisstjórninni án þess að hafa hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. „Ég er búin að ferðast um allt landið og hitta fólk úti um allt og þá finnst mér bregða við að mjög margir vilja ekki setja sig inn í þetta, nenna því ekki og margir ætla að segja já til að sjá og taka síðan ákvörðun,“ sagði hún. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, sagðist aldrei hafa fundið fyrir jafn miklum stuðningi á sínum pólitíska ferli en hún var flutningsmaður þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. „Mér finnst ákveðin verðmæti í umræðunni fyrir okkur sem þjóð, alveg óháð þessum hávaða,“ sagði hún. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. AFP/Nicolas Tucat Ljóst að Íslendingar vilji ekki ESB Að mati Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, hefur umræðan verið skrýtin frá upphafi og sagði hann það alveg ljóst að Íslendingar vilji ekki ganga í sambandið. „Meira og minna allir sem eru meðvitaðir um gang mála alþjóðlega vita hvað felst í umsókn um aðild að Evrópusambandinu,“ sagði hann og kvaðst frekar vilja ræða það efnahagsástand sem komið væri upp hér á landi í boði ríkisstjórnarinnar. „Í stað þess að dregin væri upp sleggja, eins og var lofað, til að berja niður vexti og verðbólgu þá var dregin upp öxi til að kljúfa þjóðina,“ bætti hann við. Frétt af mbl.is Markmiðið ekki að sjá hvað er í boði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Karítas Bjóða upp á lýðræðisveilsu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir það skoðun síns flokks að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Flokkurinn hafi þó alltaf verið kyndilberi beins lýðræðis. „Það er í mínum huga lýðræðisveisla sem við erum að bjóða upp á, við erum að rétta valdið til þjóðarinnar,“ sagði hún. Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins utan þings, sagðist ósammála forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. „Það sem skiptir mestu máli fyrir íslenskt samfélag akkúrat núna er að vextir myndu lækka fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu.“ Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tengdar fréttir Ísland og ESB Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Ekki hægt að hafa stjórn á Evrópudómstólnum Markmiðið ekki að sjá hvað er í boði Beint: Baudenbacher ræðir Ísland og ESB Meirihluti fyrirtækja í SA andvígur aðild að ESB » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Myndskeið: Féll ofan í holu í fagnaðarlátum Lykilmaður framlengir við Tottenham Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Umræðan Skaðleg samúð Hvað heldur eiginlega dyrunum opnum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Loka húsnæðinu vegna myglu Tveir menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna mannsláts Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nýjast á mbl.is » Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Myndskeið: Féll ofan í holu í fagnaðarlátum Lykilmaður framlengir við Tottenham Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Umræðan Skaðleg samúð Hvað heldur eiginlega dyrunum opnum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Írar vilja fá Ísland inn vegna eigin hagsmuna Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Já til að sjá, en hvað lokast? „Ekkert að frétta“ af rannsókninni Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Fleiri en einn í haldi vegna manndráps

Share this article