Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Minnst fimm týndu lífi í loftárás á Zaporizhzhia — eldflaugaárás á Kyiv

This article describes kinetic military attacks, specifically missile and aerial bombardments against civilian and industrial areas in Ukrainian cities, not a software vulnerability or IT threat. The report details casualties and infrastructure damage but contains no technical information about CVSS scores, affected software versions, or IT-specific mitigations. The content is a news report on active warfare, not a technical security advisory for IT systems.
Read Full Article →

Fimm týndu lífi í loftárás Rússlandshers á úkraínsku borgina Zaporizhzhia í kvöld og 20 til viðbótar særðust. Ivan Fedorov, yfirmaður heraflans í héraðinu, greindi frá þessu á samskiptamiðlinum Telegram. Hann bætti við að líklega ættu fleiri eftir að finnast látnir. Árásir voru gerðar á iðnaðarsvæði og íbúðahverfi að sögn Fedorovs. Háværar sprengingar hafa einnig kveðið við í höfuðborginni Kyiv og borgarstjórinn Vitali Klitschko segir eldflaugaárás standa yfir. Volodymyr Zelensky forseti sagði fyrr í dag að Rússar ættu von á fleiri hermönnum frá Norður-Kóreu og hefðu einnig fengið eldflaugar þaðan nýlega. Rússar hafa hert á eldflaugaárásum síðustu vikur á sama tíma og hörgull er orðinn á bandarískum loftvarnarflaugum í Úkraínu vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Úkraínumenn hafa einnig gert fjölda árása á rússneskar borgir fjarri landamærum ríkjanna.

Share this article