Áströlsk yfirvöld tilkynntu í morgun að þau hygðust bólusetja fuglategundir sem taldar eru sérstaklega viðkvæmar fyrir hinum mjög svo smitandi H5-fuglaflensustofni. Árum saman var Ástralía eina meginlandið sem var laust við afbrigðið sem valdið hefur alvarlegum veikindum og dauða villtra og alifugla um heim allan. Veiran greindist í fyrsta skipti í farfugli í júní og í liðinni viku tilkynntu yfirvöld um fyrsta fjöldadauðann meðal villtra fugla. Hún virðist helst herja á sjó- og vatnafugla ásamt ránfuglum. Næstum helmingur villtra fugla í Ástralíu og 83 af hundraði spendýra eru af tegundum sem hvergi annars staðar eru til. Embættismenn segja bólusetningaráætlun þegar liggja fyrir. Umhverfisráðherrann Murray Watts segir að til að byrja með verði einblínt á bólusetningu alifugla enda þrautin þyngri að ná villtum dýrum, hvað þá tvisvar eins og þarf. Þó verði reynt að koma bóluefni í villta fugla þar sem því verður komið við. Veirunnar hefur hvorki orðið vart í alifuglum né öðrum búfénaði. Landbúnaðarráðherrann Julie Collins kveðst óttast frekari fjöldadauða villtra fugla enda sé vitað að veiran dreifist hratt.