Innlent | Morgunblaðið | 11.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Hvers vegna er ríkisstjórnin ekki að gera neitt? Hjörtur J. Guðmundsson mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Verðbólgan mældist 5,3% í júlí. Verði hún meiri en 4,7% í ágústmælingunni virkjast forsenduákvæði kjarasamninga og hægt verður að segja þeim upp. Aðilar vinnumarkaðarins hafa ítrekað varað við þessu undanfarna mánuði. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert til þess að koma í veg fyrir að samningunum verði sagt upp. Fyrir utan tímabundna skattalækkun á eldsneyti í vor eftir mikinn þrýsting í þjóðfélaginu sem þó var dropi í hafið miðað við hækkanir hennar á ýmsum gjöldum í byrjun ársins. Þvert á móti hefur hún ítrekað stuðlað að aukinni verðbólgu með ákvörðunum sínum. Nú síðast var tilkynnt um áform hennar um að hækka ýmis gjöld í heilbrigðiskerfinu. Þar á meðal komugjöld á heilsugæzlustöðvar um 100%. Sérfræðingar hafa bent á að ef ekki hefði komið til opinberra hækkana í ársbyrjun væru kjarasamningarnir að öllum líkindum ekki í uppnámi. Hvað skýrir aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og þvert á móti ákvarðanir hennar sem stuðlað hafa að aukinni verðbólgu? Höfum í huga að verðtryggð lán taka mið af tólf mánaða verðbólgu og inni í henni eru enn og verða út árið hækkanir stjórnvalda í byrjun þess og eftir það. Vanhæfni er ekki nægjanleg skýring þótt hún sé vafalaust hluti hennar. Þetta er svo langt út fyrir það. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, lét eftirfarandi orð falla í hlaðvarpinu Chess After Dark 27. ágúst 2024: „Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“ Fleiri forystumenn ríkisstjórnarinnar eru vitanlega meðvitaðir um þetta. Þar á meðal og ekki sízt Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Daufheyrzt við varnaðarorðum Fyrir vikið er farið að ræða þetta víða í þjóðfélaginu. Eðlilega. Þar á meðal í atvinnulífinu. „Við erum í skrítinni stöðu. Við erum með ríkisstjórn sem vill troða okkur í ESB og maður hreinlega spyr sig hvort ríkisstjórnin sé að reyna að hafa efnahagsmálin hér heima í algjörum ólestri til þess að auka líkurnar á að fólk velji að fara í ESB. Við þurfum að fara að rífa okkur í gang hérna heima og taka ábyrgð á okkur sjálf. Það eru engar töfralausnir, og ESB er svo sannarlega ekki töfralausn heldur efnahagslega hnignandi samband eins og allir sjá sem kynna sér málin,“ sagði Daði Kristjánsson fjármálahagfræðingur til að mynda fyrr á árinu á Facebook-síðu sinni í kjölfar síðustu stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Fleiri í atvinnulífinu hafa vakið máls á þessu, eins og til að mynda Stefán Guðmundsson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants. Ég vildi lengi vel alls ekki trúa því að ríkisstjórnin gæti lagzt svona lágt til þess að reyna að fá landsmenn til þess að samþykkja í þjóðaratkvæðinu í lok ágúst að hefja inngöngu í Evrópusambandið með tilheyrandi fullri aðlögun að því samhliða viðræðum um inngöngu í það. En sífellt fleira hefur hins vegar bent til þess að svo sé í raun. Hvað annað getur skýrt framgöngu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum? Við erum bæði með forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem eru sprenglærðir hagfræðingar. Eiga allavega að heita það. Hvers vegna hefur ríkisstjórnin daufheyrzt til að mynda við ítrekuðum varnaðarorðum forystumanna verkalýðshreyfingarinnar um að nánast öruggt sé að forsendur kjarasamninga muni bresta vegna verðbólgunnar? Hvernig dettur stjórninni í hug að halda þess í stað áfram að kynda undir henni? Nei í þjóðaratkvæðinu 29. ágúst Mikill pólitískur hvati er einfal dlega fyrir hendi fyrir ríkisstjórnina til að staða efnahagsmálanna versni og batni ekki. Vert er að hafa í huga í því sambandi að innganga í Evrópusambandið er í reynd eina eiginlega stefnumál Viðreisnar. Flokkurinn var beinlínis stofnaður í kringum það á sínum tíma. Öll önnur stefnumál hans taka mið af því með einum eða öðrum hætti. Öllu virðist hreinlega fórnandi fyrir það. Verði niðurstaða þjóðaratkvæðisins í lok ágúst að stefnt verði að inngöngu í sambandið verður pólitíski hvatinn áfram til staðar enda þarf þá að tryggja að sama skapi að samningur verði samþykktur eftir einhver ár sem yrði enn meiri brekka fyrir ríkisstjórnina. Bætt staða efnahagslífsins myndi aðeins minnka líkurnar á því. Fyrir vikið er eina leiðin til þess að verðbólga fari mögulega að minnka að segja nei í þjóðaratkvæðinu 29. ágúst. Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Alexis Sánchez finnur sér nýtt lið „Þetta verður algjört skrímsli“ Messi tekur sér pásu Aðsend grein: Hvaða lærdóm má draga af atburðunum í Ceuta? Aðsend grein: Hvers vegna er ríkisstjórnin ekki að gera neitt? Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvers vegna er ríkisstjórnin ekki að gera neitt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Öll hótel uppbókuð og engir bílaleigubílar eftir Já til að sjá, en hvað lokast? Minkarnir hættir að koma í gildrurnar Loka húsnæðinu vegna myglu Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðji færður fyrir dómara Komu auga á fjölda ísjaka Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Bæjarstjóri um Kársnesmálið: „Þetta er skelfilegt“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kaupa stöðvar og steina fyrir Borgarlínuna Ekki hagsmunir Íslands Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Markmiðið ekki að sjá hvað er í boði Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Alexis Sánchez finnur sér nýtt lið „Þetta verður algjört skrímsli“ Messi tekur sér pásu Aðsend grein: Hvaða lærdóm má draga af atburðunum í Ceuta? Aðsend grein: Hvers vegna er ríkisstjórnin ekki að gera neitt? Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvers vegna er ríkisstjórnin ekki að gera neitt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Tveir menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna mannsláts Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðji færður fyrir dómara Komu auga á fjölda ísjaka Segir fjölskyldur varla geta hist vegna umræðunnar Bæjarstjóri um Kársnesmálið: „Þetta er skelfilegt“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kaupa stöðvar og steina fyrir Borgarlínuna Ekki hagsmunir Íslands Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Markmiðið ekki að sjá hvað er í boði Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB kjarni málsins Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“