Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Micros­oft kynnir til leiks nýja gervi­greindar­flögu

Read Full Article →

Microsoft hyggst kynna nýju gervigreindarflöguna Maia 300 í haust, jafnvel strax í september. Reuters greinir frá þessu og vísar til fréttar The Information, sem byggir á upplýsingum frá heimildarmönnum sem þekkja áformin. Fyrirtækið kynnti fyrstu Maia-flöguna í nóvember 2023 en hefur undanfarið dregist aftur úr keppinautunum Alphabet og Amazon í uppbyggingu eigin flöguframleiðslu. Með þróun þeirra vill Microsoft draga úr þörfinni sinni á að kaupa dýra örgjörva frá Nvidia. Google hóf á ársfjórðungnum sem lauk í júní að færa til tekna beina sölu á eigin gervigreindarflögum, svonefndum Tensor Processing Units. Notkun á örgjörvum Amazon hefur einnig aukist, þar á meðal Trainium-flögunum. Samkvæmt The Information hefur Microsoft rætt við hálfleiðaraframleiðandann TSMC um að tryggja framleiðslugetu fyrir meira en 300.000 Maia 300-flögur, sem afhenda á árið 2027. Fyrirtækið vill jafnframt stórauka framleiðsluna og freista þess að fá stóra skýjaþjónustuviðskiptavini, á borð við Anthropic, til að taka flöguna í notkun. Til lengri tíma stefnir Microsoft að því að tryggja framleiðslugetu fyrir meira en eina milljón Maia 300-flaga. Skortur á íhlutum og óloknar viðræður við TSMC um framleiðslugetu gætu þó grafið undan þeim áformum. Microsoft kynnti aðra kynslóð flögunnar, Maia 200, í janúar. Hún er framleidd af TSMC með þriggja nanómetra tækni og inniheldur mikið magn SRAM-minnis. Slíkt minni getur aukið afköst gervigreindarkerfa sem þurfa að afgreiða fjölda fyrirspurna frá notendum.

Share this article