Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögreglan leitar vitna að líkamsárás á Þjóðhátíð

Read Full Article →

Margt fólk kom saman á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina.Aðsend / JonfromIceland Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás sem var gerð á Brekastíg um klukkan 19:30, laugardaginn 1. ágúst. Í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum á Facebook segir að brotaþoli hafi verið sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum geranda sem flúði í framhaldinu. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur af vettvangi í sjúkrabíl. Vitni eða þeir sem hafa upplýsingar um árásina eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-2090 eða senda tölvupóst á vestmannaeyjar@logreglan.is.

Share this article