Elimar Hauksson, verjandi eins mannanna sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns á Kársnesi í Kópavogi um helgina, hefur kært úrskurðinn til Landsréttar. Vísir.is greindi fyrst frá. Lögregla tilkynnti fyrr í dag að erlendur ríkisborgari hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsóknina og sitja því alls þrír í varðhaldi í tengslum við málið. Elimar segir að kröfunni um gæsluvarðhald hafi verið mótmælt í gær og hún svo kærð í dag. Hann sagðist þó ekki geta tjáð sig um málið að öðru leyti. Elimar er verjandi þriðja mannsins sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald í gær. Maðurinn er erlendur ríkisborgari. Hann var skipaður í gæsluvarðhald til 14. ágúst. Líkt og fréttastofa sagði frá í gær höfðu tveir menn verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Annar þeirra í vikulangt varðhald, til 17. ágúst, en hinn til 21. ágúst. Fleiri voru handteknir vegna málsins, meðal annars í lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík. Ekki liggur enn fyrir hvort farið hafi verið fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra. Lögregla veitir litlar upplýsingar um gang mála og er enn ekkert hægt að fullyrða um tengsl mannanna við hinn látna. Karlmaðurinn sem lést var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri og bjó í Vallargerði á Kársnesi.