Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Svo heyra menn bara skothvell og svo er hann horfinn í hafið“

  • What: A story about a German inventor who died in Akureyri is shared
  • Impact: The inventor is known for creating the Schrader valve
Read Full Article →

„Svo heyra menn bara skothvell og svo er hann horfinn í hafið,“ segir Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og rithöfundur. Hann segir frá afdrifum þýsk-bandaríska uppfinningamannsins og milljónamæringsins Georgs Schrader sem dvaldi á Akureyri á árunum 1912-1915. Í nóvember 1915 skaut Schrader sig á þilfarinu á síldarbátnum Helga magra sem hann hafði fengið far með til Noregs. Fyrri heimsstyrjöldin var þá í fullum gangi og Schrader var illa haldinn af óþekktum tauga- eða hrörnunarsjúkdómi. Saga Schraders er enn þá ráðgáta að hluta til en hann markaði ákveðin spor á Akureyri. Ásgeir Jónsson hefur kynnt sér sögu Schraders og skrifað um hann, meðal annars í formála um bók í viðskiptafræðum sem Georg Schrader skrifaði. Ásgeir stóð fyrir endurútgáfu á henni á íslensku fyrir tæpum 20 árum. Nafn þessa manns er heimsþekkt vegna loftventilsins sem hann fann upp, Schrader-ventilsins. Þetta er útbreiddasti ventill í heimi og er notaður á reiðhjólum, bifreiðum, flugvélum og fleiri farartækjum. Fjallað er um örlög Georgs Schraders og áhrif hans á Akureyri í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Hægt er að hlusta á þáttinn hér: Maðurinn sem fann upp frægasta loftventil í heimi bjó á Akureyri síðustu ár ævi sinnar, 1912-1915. Hann var sjúkur af hrörnunar- eða taugasjúkdómi. Akureyringur hefur kallað eftir því að reistur verðir minnisvarði um Georg Schrader. Undirbjó sjálfsvígið vel Um borð í síldarbátnum Helga magra skrifaði Schrader bréf til vinar síns Steingríms Matthíassonar læknis og sendi honum peninga til að stofna sérstakan sjóð til styrktar fjölskyldum sjómanna sem höfðu látist við störf sín. Áður en hann skaut sig hafði Schrader gefið alla peningana sem hann var með á sér til áhafnar síldarbátsins og hent öllum skjölum sínum og gögnum í sjóinn. Schrader hafði látið gott af sér leiða á Íslandi. Hann byggði sérstakt hótel fyrir hesta á Akureyri sem kallað var Caroline's Rest, hann gaf út bók um íslenska hestinn, kostaði útgáfu frægrar matreiðslubókar sem Jóninna Sigurðardóttir skrifaði, gaf út viðskiptafræðibókina í íslenskri þýðingu Steingríms Matthíassonar og fleira. Ásgeir telur að Schrader hafi komið til Íslands til að skrifa bókina um íslenska hestinn. Dauði Georgs Schraders vakti talsverða athygli á Íslandi og í Bandaríkjunum. Matthías Jochumson, faðir áðurnefnds Steingríms sem var vinur Schraders, skrifaði meðal annars kvæði um hann að honum látnum. Sagt var frá andláti Schraders í erlendum fjölmiðlum eins og New York Times . Lýsingarnar á Schrader í bandarísku minningargreininni eru svipaðar og frá Íslandi: Hann var dýra- og barnavinur sem vildi láta gott af sér leiða. Kallaði eftir minnisvarða um Schrader Bók Schraders um íslenska hestinn er mörgum minnisstæð sem og hestahótelið Caroline's Rest í miðbænum á Akureyri. Einn af þeim sem man vel eftir þessu er Víðir Gíslason flugmaður sem fæddist 1954 og ólst upp á Akureyri. Upphaflega kviknaði áhugi Víðis á Schrader og tengslum hans við Akureyri þegar hann áttaði sig á því að hann væri maðurinn sem fann upp Schrader-ventilinn. Víðir áttaði sig á þessari tengingu þegar hann var að reyna að finna slöngu í dekk á flugvél sem hann átti. Víðir kynnti sér sögu Georgs Schraders betur og ákvað hann að spyrja bæjaryfirvöld á Akureyri hvort ekki væri við hæfi að reisa minnisvarða um hann í bænum. Hestamannafélagið Léttir lét árið 2013 setja minningarskjöld um störf Georgs Schraders í þágu íslenska hestsins við kirkjutröppurnar á Akureyri. Víðir benti raunar bæjaryfirvöldum á Akureyri á að kannski væri við hæfi að minnast Schraders með veglegri minnisvarða. „Ég fór þess leit við fulltrúa hjá Akureyrarbæ hvort það væri ástæða til að minnast hans með einhverju minningarmarki og reyna að segja þessa sögu hans. [...] En þetta fékk ekki miklar undirtektir og allt í lagi með það,“ segir Víðir. Hér má hlusta á fyrri þáttinn um sögu Georgs Schraders á Íslandi.

Share this article