Biðtími á tveimur stórum evrópskum flugvöllum hefur tvöfaldast í sumar frá fyrra ári eftir óskipulega innleiðingu Evrópusambandsins á nýju rafrænu landamærakerfi, samkvæmt gögnum Financial Times. Lengsta bið í Frankfurt mældist 120 mínútur í júlí, þegar sumarferðalög stóðu sem hæst, en var 60 mínútur fyrir ári. Í München lengdist hámarksbið úr 31 mínútu í 60 og á Schiphol-flugvelli í Amsterdam úr 80 mínútum í 120. Ferðaþjónustan hafði ítrekað varað við miklum töfum og flöskuhálsum vegna kerfisins. ESB tók komu- og brottfararkerfið EES (Entry/Exit System) í notkun í apríl. Farþegar frá Bretlandi og öðrum ríkjum utan sambandsins þurfa við komu sína að skrá fingraför, ljósmynd og persónuupplýsingar. Sjá einnig Nýtt landamærakerfi ESB veldur vandræðum Michael O’Leary, forstjóri Ryanair, sagði kerfið illa hannað og taldi að skráningin ætti að fara fram á netinu. „Bara Evrópubúar myndu láta sér detta svona bölvað rugl í hug,“ sagði O’Leary sem kvað flugfélagið hafa orðið vart við verulegar raðir á um 15 flugvöllum. EES-kerfið á að efla landamæraöryggi með því að skrá ferðir inn og út úr sambandinu, finna fólk sem dvelur lengur en vegabréfsáritun heimilar og aðstoða við leit að eftirlýstum einstaklingum. Innleiðingin hefur þó einkennst af töfum og tæknibilunum. Talsmaður Frankfurt-flugvallar sagði eftirlitið hafa valdið seinkunum á brottförum og annarri röskun. Margir flugvellir hafa tímabundið slakað á kröfunum, meðal annars með því að sleppa fingraförum á álagstímum. Sú undanþága á að renna út í september, en átta ESB-ríki auk Sviss hafa óskað eftir framlengingu. Framkvæmdastjórn ESB segir skráninguna taka að meðaltali 70 sekúndur og áhrifin yfirleitt takmörkuð. Stjórnin bendir jafnframt á öryggisávinninginn og að 160 milljónir komu- og brottfara hafi verið skráðar. Forstjórar British Airways og easyJet viðurkenna að vandamál hafi skapast á einstaka flugvöllum og hvetja þá til að beita tiltækum undanþágum.