Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tólf efstu sæti Miðflokksins í Reykjavík birt

Read Full Article →

Miðflokkurinn hefur birt tólf efstu sætin á lista flokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar. Áður var búið að tilkynna að Ari Edwald yrði oddviti flokksins og fréttastofa hafði eftir heimildum að Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir og Lárus Blöndal Sigurðsson skipuðu næstu tvö sæti. Nú er orðið ljóst hver skipa næstu sæti upp að því tólfta. Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur verður í fjórða sæti og Helgi Áss Grétarsson í því fimmta. Helgi Áss var kjörinn varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum en yfirgaf hann fyrir skemmstu og gekk til liðs við Miðflokkinn. Sjötta sætið skipar Páll Edwald yfirlögfræðingur. Hann er sonur Ara, oddvita listans. Framboðslistinn í heild verður birtur í næsta mánuði.

Share this article