Á landinu eru og verða um 75 þúsund erlendir ferðamenn þegar sólmyrkvinn gengur yfir á morgun. Fjöldinn er svipaður og í venjulegu ári þótt dreifing þeirra um landið verði líkast til ólík, segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur í öryggismálum hjá Ferðamálastofu. Engin bóluaukning í fjölda „Þessir 75 þúsund erlendu ferðamenn er bara mjög svipað og í ágúst í fyrra. Við erum ekki að sjá neina bóluaukningu á ferðamönnum út af almyrkvanum,“ segir Dagbjartur. Ástæðan fyrir því sé einfaldega að Ísland er uppbókað í ágúst. Hann segir að stærsta óvissan í sambandi við sólmyrkvadaginn sé hvað landsmenn gera sjálfir frekar en erlendi ferðamaðurinn. Við erum með tæplega 400 þúsund manns sem búa á íslandi og hafa áhuga á þessu. Svo er spurningin hverjir ætla að leggja land undir fót í þeirri von að sjá meira eða betur það er stóra spurningin. Miðvikudagurinn verður prófsteinninn á hvernig undirbúningur fyrir almyrkva á sólu hefur tekist til en reynt var að að horfa til reynslu annarra af álíka viðburðum, segir Dagbjartur til dæmis í Bandaríkjunum þar sem sólmyrkvi gekk yfir í hitteðfyrra. Á landinu eru um 75 þúsund erlendir ferðamenn, fjöldinn er svipaður og í venjulegu ári og stærsta óvissan á degis sólmyrkvans er hvað landsmenn gera segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur í öryggismálum á Ferðamálastofu. Sólmyrkvinn er einstakur atburður og ekki raunhæft að miða innviðauppbyggingu við einn dag að dómi Dagbjarts. Fjöldi erlendra ferðamanna er í raun á pari við það sem var í fyrrasumar en eitt er víst að umferð á víða eftir að ganga hægt og fólk þarf að vera við því búið að vera lengi í bílnum ef það heldur af stað á morgun í vesturátt. Fólk þarf að búa sig undir tafir og langan ferðatíma ekki síst á heimleið Þá sé gott að búa sig vel, bæði með vistir og líka lyf ef fólk þarf að taka þau innan ákveðinna tímamarka. Erfitt sé að segja upp á hár hve margir verða á ferðinni. Hann telur að undirbúningur fyrir sólmyrkvann hafi verið eins mikill og hægt sé en helstu áhyggjur séu af vegakerfinu.