Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
MEDIUM Attacks Mbl Innlent

Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“

  • What: Increase in burglaries in central Reykjavik reported
  • Impact: Residents in the area may be at higher risk of property crime
Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.8.2026 | 19:15 Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Teitur Atlason hefur orðið vel var við innbrotahrinuna. Samsett mynd/Colourbox/Aðsend Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er bara faraldur,“ segir Teitur Atlason, íbúi við Hringbraut í Vesturbænum, í samtali við mbl.is en hann hefur eins og margir aðrir orðið var við það hvernig innbrotum hefur stórfjölgað í miðbæ Reykjavíkur og nágrenni að undanförnu. Hann segir það skipta máli í þessu samhengi að íbúar í hverfinu beini sjónum sínum að þeim sem fremji innbrotin, ekki heilbrigðiskerfinu, stjórnmálafólki eða lögreglunni. „Við eigum ekki að „líta inn á við“ heldur að horfa beint í augun á þeim sem fremur innbrotið. Það er komið aldeilis nóg af gagnslausu umburðarlyndi gagnvart svona glæpum,“ segir hann en hann þekkir til margra sem hafa orðið fyrir þessum innbrotsþjófum. Frétt af mbl.is Þjófur réðst á Jönu með piparúða: „Ég fríkaði út“ Brotist inn í bíla og bílskúra „Þetta byrjaði með því að brotist var inn í bíl dóttur minnar á Ásvallagötunni á miðvikudaginn síðasta, að mig minnir, og það var gramsað í öllu og einhverju stolið eins og sólgleraugum og golfhönskum. Það er ekkert gaman að lenda í þessu,“ segir Teitur. Innbrotin áttu þó eftir að verða fleiri. „Svo bara daginn eftir að brotist var inn í bíl dóttur minnar þá náðist hérna innbrotsþjófur á Ring-myndavél hjá mér. Það var engu stolið sýnist mér en viðkomandi virðist hafa skáskotið sér með eitthvað innanklæða,“ segir Teitur en hann birti myndband af atvikinu á Facebook-síðu sinni . „Ég er ekki búinn að finna neitt sem viðkomandi stal en ég er viss um að hann hefur farið inn í bílskúrinn.“ Hann nefnir að konan hans hafi verið heima á þeim tíma sem innbrotsþjófurinn á að hafa brotist inn í bílskúrinn. „Það virðist ekkert hafa stoppað þjófinn, og það er leiðinlegt,“ segir hann. Frétt af mbl.is Enn eitt innbrotið í borginni Tilgangslaust rót Daginn eftir þetta var svo reynt að brjótast inn í bíl nágranna Teits og var bílhurð bílsins beygluð eftir atlöguna. „Svo daginn eftir það, í gær eða fyrradag, var vinur minn, sem vinnur við húsaviðgerðir, að skjótast í verk og var að bera inn verkfæri úr bílnum sínum. Hann skaust upp með einhvern skammt af verkfærum og kom svo til baka til að sækja restina en þá var búið að tæma bílinn og stela verkfærunum,“ segir hann. Manstu eftir slíkum fjölda innbrota í hverfinu? „Nei, ég fylgist vel með og er búinn að búa hérna lengi. Þetta er bara faraldur,“ segir Teitur. „Þetta er svona tilgangslaus rót og skemmdarverk og ekki eftir neinu að slægjast.“ Frétt af mbl.is „Það er meira eyðilagt, verið að grúska og tæta“ Lögreglan brugðist fljótt við Teitur segir lögregluna hafa brugðist tafarlaust við hans tilkynningum og segir það fjarri lagi að henni sé að kenna um þessa innbrotahrinu. „Og ég er orðinn ótrúlega þreyttur, eins og fleiri, á því að það sé alltaf verið að benda á einhver vímuefnavandamál og að samfélagið hafi brugðist þessum einstaklingum. Það kemur málinu bara ekkert við,“ segir hann. „Það er bara ókunnug manneskja í bílskúrnum mínum að róta. Mér er alveg sama þótt þessi manneskja eigi eitthvað bágt, hún á bara ekkert að vera inni í mínum bílskúr.“ Hann bendir á að fullt af fólki eigi um sárt að binda án þess að vera að brjótast inn í hús fólks. Frétt af mbl.is Enn fjölmörg innbrot: Eru með „allt í botni“ Mikilvægt að tilkynna öll brot Teitur segir það alvarlegt þegar fólk tilkynnir ekki innbrot til lögreglu. „Fólki finnst kannski ekki hafa orðið neitt tjón eða lítið tjón eða hefur ekki trú á því að löggan geti hjálpað. En þegar fólk hættir að tilkynna þá hverfur bara brotið og það er ekki hægt að kortleggja hvar innbrotin eru,“ segir hann. „Þannig að ég hvet alla til þess að tilkynna,“ bætir hann svo við en Teitur birti nýverið færslu á Facebook-hóp Vesturbæjarins og hvatti fólk til að deila sögum af innbrotum í hverfinu. Þegar þessi frétt er skrifuð eru 83 athugasemdir undir færslunni. Frétt af mbl.is Tilkynnt um innbrot víða á höfuðborgarsvæðinu Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skemmdir á nýrri vatnslögn til Eyja Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Yfirgefur Garðabæinn Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Íslandsvinurinn kom á óvart með svari sínu Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvaða lærdóm má draga af atburðunum í Ceuta? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi Bæjarstjóri um Kársnesmálið: „Þetta er skelfilegt“ Veðurhorfur heldur versnað „Tjónið er altjón“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sá þriðji færður fyrir dómara Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna „Þetta verður algjört skrímsli“ Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný „Tjónið er altjón“ Komu auga á fjölda ísjaka Sá þriðji úrskurðaður í gæsluvarðhald Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Sá þriðji færður fyrir dómara Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Nýjast á mbl.is » Skemmdir á nýrri vatnslögn til Eyja Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Yfirgefur Garðabæinn Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Íslandsvinurinn kom á óvart með svari sínu Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvaða lærdóm má draga af atburðunum í Ceuta? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sá þriðji úrskurðaður í gæsluvarðhald Ekki hagsmunir Íslands „Tjónið er altjón“ Veðurhorfur heldur versnað Mest lesið Í gær Í vikunni Sá þriðji færður fyrir dómara Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna „Þetta verður algjört skrímsli“ Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný „Tjónið er altjón“ Komu auga á fjölda ísjaka Sá þriðji úrskurðaður í gæsluvarðhald Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Sá þriðji færður fyrir dómara Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf

Share this article