Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lokað að Látrabjargi í nótt

Read Full Article →

Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að loka leiðinni frá Breiðavík að Bjargtöngum frá miðnætti í nótt og fram til klukkan 8 í fyrramálið, 12. ágúst. Ákvörðunin er tekin í samráði við Náttúruverndarstofnun og Vegagerðina. Ingvar Jakobsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir ákvörðunina tekna af öryggisástæðum. Síðustu 20 kílómetrarnir að Látrabjargi verða lokaðir yfir nóttina. Talsverður fjöldi fólks er á svæðinu og segir Ingvar markmiðið með lokuninni vera að hafa stjórn á fjölda fólks og ökutækja á svæðinu yfir nóttina. Innviðirnir við Látrabjarg hafi takmarkaða getu til að taka á móti miklum fjölda bíla. „Enginn greiði er gerður að því að vera fastur í einhverri Miklubrautarteppu,“ segir Ingvar. Ekki er heimilt að gista á svæðinu við Látrabjarg og hluti svæðisins er friðland. Breiðavík er næsti gististaður við Látrabjarg þar sem heimilt er að gista. Þegar vegurinn verður opnaður aftur klukkan 8 verður einstefna í átt að Bjargtöngum. Sama fyrirkomulag verður á leiðinni alla leið frá botni Patreksfjarðar. Einstefnan verður í gildi til klukkan 18. Stefnt er að því að snúa einstefnunni við þegar almyrkvinn hefur gengið yfir, svo umferð frá svæðinu komist sem greiðast í burtu. Almyrkvinn verður á morgun, 12. ágúst, og mun hann vara lengst á landi við Látrabjarg, eða í tvær mínútur og 13 sekúndur.

Share this article