Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vinsældir Trumps halda áfram að dala

Read Full Article →

Nettóvinsældir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hafa aldrei mælst jafn lágar eða -27. The Economist greinir frá þessum niðurstöðum skoðanakönnunar YouGov. 61% aðspurðra í könnuninni eru óánægð með störf forsetans, 34% eru ánægð með störf hans og 4% aðspurðra eru óvissir. Þetta er minnsti stuðningur við forsetann síðan hann hóf síðari forsetatíð sína í Hvíta húsinu. Stuðningurinn hefur lækkað um tæpt prósent frá síðustu mælingu fyrir viku síðan. Áframhaldandi árásir í Mið-Austurlöndum um miðjan júlí eru taldar mögulegar ástæður fyrir dvínandi fylgi hans milli kannana. Óvinsældir hans eru einnig sagðar vegna verðbólgu og verðhækkana í Bandaríkjunum. Meðalverð fyrir gallon af bensíni var undir þremur dollurum fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum en nú er verðið komið í um 4 dollara. Hallar á vinsældir Trumps í rauðum ríkjum The Economist áætlar út frá gögnum YouGov að fylgi við Trump mælist lægst í ríkjum sem kjósa frekar Demókrataflokkinn en vinsældir hans séu meiri í þeim ríkjum þar sem fylgi við Repúblikana er meira. Engu að síður hallar á vinsældir hans í ríkjum þar sem hann hlaut meirihluta atkvæða í forsetakosningunum 2024. Hvítir kjósendur og karlmenn eru í hópi þeirra sem eru líklegastir til að vera ánægðir með frammistöðu Bandaríkjaforseta. Ungir kjósendur og kjósendur sem tilheyra minnihlutahópum eru hvað óánægðastir með frammistöðu forsetans. Vel menntaðir kjósendur með háskólagráður eru ólíklegastir til að styðja Trump. Kjósendur á ellilífeyrisaldri, sem eru öllu jafna traustir kjósendur Repúblikanaflokksins, eru dræmir stuðningsmenn forsetans. Þegar rýnt er í hvaða málaflokkar skipta kjósendur máli er munur á milli kjósenda Repúblikanaflokksins og kjósenda Demókrataflokksins. Innflytjendamál, skattar og útgjöld ríkisins eru þeir málaflokkar sem fylgjendur Repúblikanaflokksins horfa einkum til. Fylgjendur Demókrataflokksins hafa meiri áhyggjur af heilbrigðismálum og loftslagsmálum. Ekki kemur fram í umfjöllun The Economist hvernig skoðanakönnunin YouGov er framkvæmd eða hversu stórt úrtakið í henni er.

Share this article