Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Maðurinn er fundinn

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Mað­ur­inn er fund­inn Sigrún Björk Hjartardóttir Merki lögreglunnar. RÚV / Birgir Þór Harðarsson Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er kominn í leitirnar, heill á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan sendi á fjölmiðla. Lögregla þakkar veitta aðstoð við leitina. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um að maðurinn sé fundinn. Fyrir 6 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Vin­sæld­ir Trumps halda áfram að dala Stríðið í Mið-Austurlöndum, verðbólga og verðhækkanir í Bandaríkjunum eru meðal þess sem talið er að hafi áhrif á dvínandi stuðning við Bandaríkjaforseta undanfarið. Í nýjustu skoðanakönnun YouGov eru aðeins 34% aðspurðra ánægð með störf forsetans. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Lokað að Látra­bjargi í nótt Lögreglan lokar leiðinni frá Breiðavík að Bjargtöngum yfir nóttina vegna mikillar aðsóknar. Einstefna verður að Látrabjargi frá klukkan 8 og fram til klukkan 18. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fótbolti Ron­aldo kominn í hnapp­held­una Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo og spænska fyrirsætan og áhrifavaldurinn Georgina Rodríguez eru nýgift. Athöfnin var haldin í Cascais í Portúgal og er henni lýst sem lítilli og persónulegri. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Rétt­ar­höld hafin vegna morðs­ins á Tupac Shakur fyrir 30 árum Eftir tæplega 30 ára bið eru loksins hafin réttarhöld vegna morðsins á rapparanum Tupac Shakur. Sjálfsævisaga þess ákærða leiddi til þess að hann var handtekinn. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Sá fljótasti í Evrópu kemur frá Bret­landi en Evr­ópu­meist­ar­inn togn­aði Romell Glave frá Bretlandi er Evrópumeistari í 100 metra hlaupi karla. Evrópumeistarinn ríkjandi, Marcell Jacobs, tognaði í miðju hlaupi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Margir vilja upp­lifa al­myrk­v­ann ofar skýjum Fjölmargir vilja freista þess að vera skýjum ofar þegar sólmyrkvinn skellur á á morgun. Allt þyrluflug er uppbókað og það eru fleiri einkaþotur hér á hlaðinu á Reykjavíkurflugvelli en gengur og gerist. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Frábær stað­fest­ing á vinnu síð­ustu ára Hilmar Örn Jónsson varð sjöundi í sleggjukasti á EM með 77,26 metra kasti. Þetta er besti árangur Íslendings á EM utanhúss í 24 ár. Hilmar segir árangurinn staðfestingu á níu ára vinnu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál For­sæt­is­ráð­herra skorar á SA og ASÍ Samtök atvinnulífsins og ASÍ verða að koma sér saman um aðgerðir sem þau vilja sjá ríkisstjórnina grípa til, segir forsætisráðherra. Ekki sé endalaust hægt að leysa kjarasamninga með stórum ófjármögnuðum aðgerðapökkum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Upp­lifði al­myrk­v­ann í Vest­manna­eyj­um fyrir 72 árum Ásta Sigurborg Guðjónsdóttir upplifði almyrkva á sólu í Vestmannaeyjum árið 1954. Hún var þá 25 ára og myrkvinn kom henni að óvörum. Hún fylltist lotningu en fannst hann á sama tíma ógnvekjandi. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Freista þess að fljúga með skugga mánans Vísindamenn frá bandarísku geimferðastofnuninni NASA freista þess að fljúga með skugga mánans í almyrkvanum á morgun og afla þannig mikilvægra gagna um áhrif sólar á jörðu. Farkosturinn er flugvél á áttræðisaldri. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Skemmd­ir á nýju vatns­lögn­inni Almannavarnalögn til Vestmannaeyja varð fyrir skemmdum um helgina. Útlagning hennar hefur verið stöðvuð vegna þessa. Beðið er formlegrar skýrslu um atvikið. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Telur með­al­hófs ekki gætt við máls­með­ferð skip­verja Band­ero Lögmaður skipverja á skipinu Bandero telur meðalhófs ekki gætt við málsmeðferð þeirra. Mögulegt sé að skipið og þeir skipverjar sem eftir eru festist hér á landi í nokkurn tíma. Umsókn um tímabundna frestun brottvísunar var í dag hafnað. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Hilmar með besta ár­ang­ur Ís­lend­ings á EM í 24 ár Hilmar Örn Jónsson keppti í úrslitum sleggjukasts karla á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í kvöld. Lengsta kast hans var 77,26 metrar og skiluðu honum sjöunda sætinu. 7. sæti er besti árangur Íslendings á EM utanhúss síðan Jón Arnar Magnússon varð fjórði í tugþraut árið 2002 í München Hér má sjá gild köst Hilmars í keppninni og viðtal eftir keppni. SAMANTEKT Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ekki fundið fyrir jafn miklum áhuga á Ís­landi nema í krís­u­ástandi Íslandsstofa hefur opnað fjölmiðlamiðstöð vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Von er á blaðamönnum frá hátt í fimmtíu erlendum fjölmiðlum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Stóra spurn­ing­in er hvert lands­menn fara sjálf­ir á sól­myrkva­degi Á landinu eru um 75 þúsund erlendir ferðamenn, fjöldinn er svipaður og í venjulegu ári og stærsta óvissan á degis sólmyrkvans er hvað landsmenn gera segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur í öryggismálum á Ferðamálastofu. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Um­ferð­in þyng­ist – „Mjög ánægju­legt hvað margir eru á ferð­inni í dag“ Umferð um Hvalfjarðargöng, Svínadal og Kleifaheiði hefur verið þyngri í dag en vanalegt er. Flestir virðast vera á leið á Vestfirði til að horfa á almyrkvann á morgun. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Eldur í fiski­bát norður af Flat­eyri í morgun Eldur kviknaði í litlum fiskibát á Vestfjörðum í morgun. Einn var um borð. 11. ágúst 2026 kl. 15:55ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Brott­rek­inn for­seti Hæsta­rétt­ar Ung­verja­lands skip­að­ur for­seti lands­ins Andras Baka, sem var rekinn úr embætti forseta Hæstaréttar Ungverjalands þegar Viktor Orban var forsætisráðherra, var í dag skipaður forseti landsins. Baka var gagnrýninn á embættisfærslur Orban í valdatíð hans. 11. ágúst 2026 kl. 15:38MENNING OG DÆGURMÁL Íslenska Tungl myrkv­ar sólu „Jeg kalla það ekki formyrkvan, því það er ljótt orð,“ sagði Jónas Hallgrímsson um það þegar tungl myrkvar sólu og gaf því heitið sólmyrkvi. Anna Sigríður Þráinsdóttir fjallar um nýyrði Jónasar í Stjörnufræði Ursins í Orði af orði á Rás 1. 11. ágúst 2026 kl. 15:05ERLENDAR FRÉTTIR Kósovó Kastaði eggjum í starf­andi for­sæt­is­ráð­herra Uppnám varð í þinginu í Kósovó um helgina þegar þingmaður stjórnarandstæðinga kastaði nokkrum eggjum í forsætisráðherra landsins. Þetta var fyrsti þingfundur eftir kosningar sem voru haldnar í júní. 11. ágúst 2026 kl. 14:40ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Allt að 38 stiga hita spáð í Eng­landi á fimmtu­dag Breska veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna hita í Austur- og Suðaustur-Englandi. Hitinn gæti náð allt að 38 stigum þegar verst lætur. 11. ágúst 2026 kl. 14:21INNLENDAR FRÉTTIR Matur Inn­kalla krydd sem gæti inni­hald­ið skor­dýr Grétar Þór Sigurðsson Dillið Aðföng Að beiðni Salling Group hafa Aðföng hafið innköllun á Salling Øko Dild í 15 gramma pakkningum. Innköllunin er tilkomin vegna þess að bjöllur gætu leynst innan um kryddið. Innköllunin nær til tveggja lotunúmera, 007221 (best fyrir: 15.09.2027) og lotunúmer 009157 (best fyrir: 25.03.2028). Viðskiptavinum Bónuss og Hagkaups sem hafa keypt dillið er ráðið frá því að neyta þess. Þeim er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. 11. ágúst 2026 kl. 14:13INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hafa borið kennsl á mann­inn sem lést í bíls­lysi á Þrengsla­vegi Lögreglan á Suðurlandi hefur borið kennsl á mann sem lést í bílslysi á Þrengslavegi í lok júlí. Aðstandendur mannsins báru kennsl á líkið. 11. ágúst 2026 kl. 14:08INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lög­reglu­við­bún­að­ur við Aust­ur­bæj­ar­skóla vegna and­láts Lögreglan segir ekkert benda til þess að andlátið hafa borið að með saknæmum hætti á þessu stigi máls. 11. ágúst 2026 kl. 14:00INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Svo heyra menn bara skot­hvell og svo er hann horf­inn í hafið“ Maðurinn sem fann upp frægasta loftventil í heimi bjó á Akureyri síðustu ár ævi sinnar, 1912-1915. Hann var sjúkur af hrörnunar- eða taugasjúkdómi. Akureyringur hefur kallað eftir því að reistur verðir minnisvarði um Georg Schrader. 11. ágúst 2026 kl. 13:13ÍÞRÓTTIR Fótbolti FH til Kýpur og Breiða­blik til Rúm­en­íu Almarr Ormarsson Dregið var í fyrstu umferð forkeppni Evrópubikars kvenna í fótbolta í dag. FH og Breiðablik voru í pottinum. FH mætir Appollon Ladies sem varð kýpverskur meistari á síðasta tímabili. Breiðablik leikur gegn FK Csíkszereda frá Rúmeníu en liðið varð í öðru sæti úrvalsdeildarinnar þar í landi í vor. Úr leik Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli Mummi Lú Hafnfirðingar byrja á útivelli en Blikar verða á heimavelli í fyrri leiknum. Leikið verður 26. ágúst og 2. september. Tvær umferðir eru í forkeppninni áður en Evrópubikarinn sjálfur hefst. Sænska liðið Häcken vann keppnina í ár en það var í fyrsta skipti sem hún var haldin. 11. ágúst 2026 kl. 13:13INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Jim Ratclif­fe og Guð­mund­ur í Brim fjár­festa í Fjalla­lambi á Kópa­skeri Fjallalamb hefur átt í erfiðleikum og sagt var frá því í júlí að Byggðastofnun ætlaði ekki að afskrifa skuldir fyrirtækisins. Heimamenn leituðu til fjársterkra aðila sem eru með rekstur og eiga jarðir á Norðausturlandi. 11. ágúst 2026 kl. 13:09INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg „Horfðu til himins í miðbæ Sel­foss“ „Horfðu til himins í miðbæ Selfoss“ er yfirskrift hátíðar á Selfossi þar sem bæjarbúar eru hvattir til að koma saman á morgun og fylgjast með sólmyrkvanum. 11. ágúst 2026 kl. 12:56ERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Hólm­bert bjarg­aði manni úr brenn­andi bíl í Suður-Kóreu Myndband af íslenskum fótboltamanni og vini hans bjarga manni úr brennandi bíl í Suður-Kóreu hefur vakið mikla athygli. Ekki mátti tæpara standa því bíllinn varð alelda á nokkrum mínútum. 11. ágúst 2026 kl. 12:48INNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 „Verður alltaf upp­lif­un, sama hvern­ig skýin eða veðrið verður“ Líkur eru á slæmu skyggni og rigningu víða á meðan á almyrkvanum stendur á morgun. Veðurfræðingur segir atburðinn þó alltaf upplif

Share this article