Í dag verður austlæg átt, 5 til 13 metrar á sekúndu, hvassast við suðurströndina. Rigning eða skúrir víða um land en lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi. Spár gera ráð fyrir skýjuðu veðri á vestanverðu landinu seinni partinn í dag. Líkur á að skýjuhulan brotni eru eins og áður frekar litlar, að því er segir í nýjum veðurpistli Veðurstofunnar, „en ef það gerist þá er það líklegast á norðvestanverðu landinu.“ Það lægir og dregur smám saman úr vætu í kvöld. Hiti 8 til 20 stig, svalast við sjóinn norðan- og austan til. Á morgun verður norðlæg eða breytileg átt, 5 til 10 metrar á sekúndu á norðanverðu landinu en annars hægari. Dálítil rigning eða skúrir í flestum landshlutum en úrkomulítið suðvestan til eftir hádegi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnan- og austanlands. Á föstudag er útlit fyrir norðlæga átt, 5 til 10 metra á sekúndu, en 10 til 18 austanlands. Hvassast verður í vindstrengjum á sunnanverðum Austfjörðum og aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Dálítil væta, einkum fyrir norðan, en léttir til á Vesturlandi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast sunnan heiða.