Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland R. Ravindra Morgunblaðið/Árni Sæberg Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, lagði sér­staka áherslu á mikilvægi orðsins sambands í ræðu sinni á þriðja leiðtogafundi Indlands og Norðurlandanna sem haldinn var í Osló 19. maí 2026. Hún sagði í íslenskri þýðingu: „ … ég elska þetta orð, samband […] en þetta er rammíslenskt orð, þið verðið að heyra þetta. Fólk á eftir að tileinka sér þetta tungutak því að þetta er það sem fólk þarf. Nú á dögum þarf fólk meira samband.“ Áður hafði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, talað á hindí og bent á menningarleg tengsl Indlands og Norðurlandanna. Hann útskýrði að orðið „sambandh“ merkti tengsl, bönd og samband á hindí. Tengsl Indlands og Íslands eru ekki ný af nálinni. Fyrirliggjandi heimildir rekja samband landanna aftur til 17. aldar, þegar Jón Ólafsson Indíafari ferðaðist til Indlands árið 1622. Leyfið mér að lýsa eðli þessara tengsla með því að nefna sex dæmi úr sögunni. Jón Ólafsson Indíafari var sjómaður frá Vestfjörðum. Hann sigldi til Indlands með dönsku skipi árið 1622 og dvaldi í dönsku byggðinni við virkið í Tharangambadi frá október 1622 til september 1624. Árið 1660 skrifaði hann sjálfsævisögu sína og greindi þar frá reynslu sinni á Indlandi. Hann fjallaði sérstak­lega um hofin, dansarana og valdatíð konungsins á svæðinu við Tharangambadi. Sjálfsævisaga hans er því fyrsta frásögn sjónarvotts af Indlandi sem skrifuð var á Íslandi. Frásögn Jóns var ekki sú síðasta. Indland lifði áfram í hugarheimi Íslendinga alla 19. öldina með tilkomu prentunar og útgáfu tímarita og bóka á íslensku. Í tímaritum á borð við Fjölni, Skírni og Þjóðólf má finna fjölmargar umfjallanir um þróun mála á Indlandi, herleiðangra, stríðið í Afganistan, ópíumstríðið og uppreisnina gegn breskum yfirráðum árið 1857. Í greinum og frásögnum frá 19. öld var einnig fjallað af forvitni um indverskar hátíðir á borð við Holi, villt dýr eins og fíla, og sanskrít. Umrædd skrif má finna á timarit.is. Undir lok 19. aldar náði áhuginn á Indlandi til heimspekilegra hugmynda eins og Vedanta og jóga. Vedanta-heimspeki hins tilkomumikla sonar Indlands, Swami Vivekananda, hafði mikil áhrif á Þórberg Þórðarson og Jón Thoroddsen. Þeir þýddu fyrirlestra hans undir heitinu Starfskraftur. Áhrif indverska Nóbelsverðlauna­hafans Rabindranath Tagore voru áberandi í upphafi 20. aldar í íslenska bókmenntaheiminum. Árið 1913 varð Tagore fyrsti Asíubúinn til að hljóta Nóbelsverðlaun. Bókmenntaverk hans, Gitanjali, kom út í íslenskri þýðingu undir heitinu Ljóðformur árið 1919. Íslenski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Halldór Laxness hlýddi á fyrirlestur Tagore í Van­couver árið 1929 og skrifaði í kjölfarið ritgerðina „Rabindra Nath Tagore í Vancouver“. Þar fjallaði hann meðal annars um „skoðanir hins dreymna austræna vitrings“ og sagði að rödd Tagores væri „tiltakanlega gregorisk“. Halldór Laxness heimsótti Indland árið 1958 og var ríkisgestur við hátíðarhöld í Nýju-Delí í tilefni af lýðveldisdeginum 26. janúar. Þar hitti hann einnig Jawaharlal Nehru forsætisráðherra. Í tilefni aldarafmælis fæðingar Tagores árið 1961 skrifaði Halldór aðra ritgerð á ensku undir heitinu „Gitanjali in Iceland“. Þar fjallaði hann um mikilvægi ljóðræns prósa Tagores fyrir íslenska rithöfunda. Árið 2026 lifir Tagore enn í bókmenntaminni Íslendinga. Sigvaldi Hjálmarsson er einnig meðal þeirra rithöfunda sem hafa aukið þekkingu Íslendinga á Indlandi. Í bók sinni, Tunglskin í trjánum: ferðaþættir frá Indlandi, segir hann frá fjölbreyttri reynslu sinni af landi og þjóð. Fáir vita að indverska badmintonstjarnan Deepu Ghosh þjálfaði íslenska landsliðið seint á níunda áratugnum og í byrjun þess tíunda. Í pólitísku samhengi hafa Indland og Ísland lengi staðið hlið við hlið í bókstaflegri og óeiginlegri merkingu. Bæði löndin öðluðust sjálfstæði á fimmta áratug 20. aldar, Ísland árið 1944 og Indland árið 1947, og urðu aðilar að Sameinuðu þjóðunum. Sendinefndir landanna eiga þar sæti hlið við hlið sem og á öðrum alþjóðlegum ráðstefnum. Þótt formlegt stjórnmálasamband milli Indlands og Íslands hafi verið tekið upp árið 1972, hófst samstarf ríkjanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna mun fyrr. Árið 1946 studdi Ísland ályktun um meðferð Indverja í Sambandsríki Suður-Afríku. Þór Thors, fyrsti fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, útskýrði að Ísland óskaði þess að allar þjóðir heims nytu jafnra tækifæra og jafnra réttinda. Sú afstaða á enn við í dag. R. Ravindra, sendiherra Indlands á Íslandi. Indverskir dansarar sýna hefðbundinn indverskan dans með fána Indlands og Íslands í baksýn. Anton Brink Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tjáir sig eftir að hafa verið bannað að dæma á HM Aðsend grein: Evran, hamingjan og óttinn Aðsend grein: 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meiri ásókn í Saga Premium en áður Einn á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sá þriðji úrskurðaður í gæsluvarðhald Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Gera ekki breytingar vegna sólmyrkva Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Elta almyrkvann í 60.000 feta hæð Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Nýjast á mbl.is » Tjáir sig eftir að hafa verið bannað að dæma á HM Aðsend grein: Evran, hamingjan og óttinn Aðsend grein: 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meiri ásókn í Saga Premium en áður Einn á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gera ekki breytingar vegna sólmyrkva „Við hvetjum fólk til að vera heima hjá sér“ „Tjónið er altjón“ Segir rauðu línuna dregna í auðlindum Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Elta almyrkvann í 60.000 feta hæð Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð

Share this article