Innlent | Morgunblaðið | 12.8.2026 | 9:45 Fólk komist hraðar á milli staða Á þessari mynd má glögglega sjá þrengingar fyrrverandi meirihluta borgarinnar og fækkun bílastæða. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Fyrri meirihlutar hafa unnið markvisst að því að fækka bílastæðum ofanjarðar í Reykjavík, sérstaklega á miðborgarsvæðinu. Við höfum einsett okkur að vinda ofan af því eins og kostur er, en vissulega hefur aðgengi að bílastæðum neðanjarðar batnað. Sömuleiðis höfum við séð skipulagðar þrengingar á umferð mjög víða um borgina á síðustu árum og nýjasta dæmið er auðvitað gatnamótin á Höfðabakka. Við ætlum okkur að innleiða samgöngustefnu sem byggist á því að koma fólki hraðar á milli staða, hvaða fararmáta sem það velur, og hverfa frá þessum skipulögðu töfum. Ég get því ekki tekið undir þessar fullyrðingar Péturs,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið, spurð út í ummæli Péturs H. Marteinssonar, oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn, í blaðinu á mánudag. Í blaðinu í gær sagði Pétur að ummælin um að bílastæðum hefði fjölgað hefðu verið mismæli af sinni hálfu. Bílastæðum hefði ekki fjölgað ofan jarðar heldur neðan. Hann gekkst einnig við því að götur hefðu verið þrengdar en hafði áður sagt að svo væri ekki. Grimmd úr lausu lofti gripin Hildur var einnig spurð út í þau ummæli Péturs að grimmari tónn væri í garð þeirra sem eiga undir högg að sækja og segist Hildur alls ekki geta tekið undir það. „Þetta þykir mér úr lausu lofti gripið. Við erum sannarlega í þeirri vinnu að hagræða í rekstri borgarinnar en á þeirri vegferð leggjum við áherslu á að standa vörð um lögbundna þjónustu við íbúana. Við ætlum að einbeita okkur að þeim verkefnum sem okkur er skylt að sinna og mörg þeirra snúa einmitt að þeim hópum sem helst eiga undir högg að sækja í samfélaginu. Við þurfum hins vegar að greina hvort við séum að ofþjónusta á ákveðnum sviðum og veita þjónustu langt umfram það sem nágrannasveitarfélög gera. Það gengur ekki í neinum rekstri að bjóða bestu þjónustuna fyrir lægstu tekjuhópana en þá verstu fyrir hæstu tekjuhópana, sem þá flýja til annarra sveitarfélaga. Slíkur rekstur verður aldrei sjálfbær. Við stöndum með velferðinni en skiljum að hún þarf öfluga verðmætasköpun til að þrífast,“ segir Hildur. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ný hverfi skipulögð „Grunnhugmyndin að baki þéttingu byggðar er að byggja á svæðum þar sem innviðir þola aukna byggð. Útfærslan hjá Reykjavíkurborg hefur verið allt önnur. Hér hefur verið þétt á þröngum svæðum inni í hverfum þar sem leik- og grunnskólar og íþróttaaðstaða eru löngu sprungin. Þetta hefur valdið mikilli andúð og óánægju inni í hverfunum, enda innviðir undir miklu álagi. Á þessum reitum hafa auk þess gjarnan verið byggðar íbúðir í óheppilegum stærðum, jafnvel án bílastæða, og svo lítil eftirspurn reynst eftir þeim að þær hreinlega seljast ekki, eins og dæmin sanna. Við viljum tryggja mun meira frelsi á húsnæðismarkaði og svigrúm til að byggja þær íbúðir sem fólk raunverulega kallar eftir,“ segir Hildur, spurð út í þau ummæli Péturs að þétting byggðar í borginni hafi ekki verið mistök. Hún segir að nú sé unnið að því að skipuleggja ný hverfi og breyta skipulagsáherslum borgarinnar. Hvað varðar ummæli Péturs um að rekstur borgarinnar sé með ágætum þrátt fyrir miklar skuldir segist Hildur ekki geta tekið undir það. „Reksturinn er ekki sjálfbær. Skatttekjur duga ekki fyrir útgjöldum. Þetta er ósköp einfalt. Borgin reiðir sig á arðgreiðslur og eignasölu til að geta staðið undir lögbundinni þjónustu. Í engum veruleika telst það ábyrgur eða öflugur rekstur. Það er alveg ljóst að í borginni þarf að ráðast í töluverðan niðurskurð ef við ætlum að ná markmiðum í rekstri á næstu árum. Við fengum mjög skýrt umboð í liðnum kosningum til að ráðast í tiltekt og niðurskurð og við ætlum okkur að framfylgja þeim vilja kjósenda. Þessu munu þó óneitanlega fylgja margar erfiðar ákvarðanir,“ segir Hildur og bendir á að borgarbúar hafi skynjað að fjármunum hafi verið sóað í óþarfa og illa hafi verið haldið á málum í rekstri borgarinnar. Niðurstaða kosninganna staðfesti það. Innantóm loforð Hvað varðar þau ummæli Péturs að innganga í ESB gæti verið áhugaverð fyrir fjárhag borgarinnar segir Hildur að engin úttekt hafi verið gerð á því. „Það er langsótt að halda því fram að fjárhagur borgarinnar batni við ESB-aðild, ekki síst þegar rökin eru helst þau að borgin muni hafa aðgang að hagstæðum lánskjörum í kjölfar inngöngu. Borgin nýtur í dag sambærilegra lánskjara t.d. í gegnum Þróunarbanka Evrópuráðsins. Ef menn telja upptöku evru bæta myndina þá myndi það ferli taka minnst áratug og hanga á þeirri forsendu að hér takist að ná stjórn á vöxtum og verðbólgu. Ég held að það sé komið gott af innantómum loforðum um betri tíð einhvern tímann, hugsanlega í framtíðinni. Það langáhugaverðasta fyrir fjárhag borgarinnar verður auðvitað að taka stjórn á vandanum strax og sýna kjark til að taka erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir til að tryggja sjálfbærni í rekstrinum,“ segir Hildur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íslenskir krakkar komu NBA-hetju á óvart Norðmaður handtekinn í Taílandi Fólk komist hraðar á milli staða Einar Margeir setti annað persónulegt met Ungstirni Arsenal vill ekki fara neitt Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gera ekki breytingar vegna sólmyrkva „Við hvetjum fólk til að vera heima hjá sér“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Elta almyrkvann í 60.000 feta hæð Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Þrír unnu sjö milljónir Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nýjast á mbl.is » Íslenskir krakkar komu NBA-hetju á óvart Norðmaður handtekinn í Taílandi Fólk komist hraðar á milli staða Einar Margeir setti annað persónulegt met Ungstirni Arsenal vill ekki fara neitt Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gera ekki breytingar vegna sólmyrkva Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Þrír unnu sjö milljónir Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps