Innlent | Morgunblaðið | 12.8.2026 | 10:05 Ábati við ESB meiri en kostnaður Kristrún telur Ísland hafa ýmsa kosti í aðildarviðræðum við ESB, en þeir skýrist ekki fyrr en ríkisstjórnin hafi fengið umboð frá þjóðinni. mbl.is/Karítas Andés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Beint streymi: Áfram Ísland fundar á Hvolsvelli „Þetta verður algjört skrímsli“ Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir vill lítið segja um hvað við tekur fái hún umboð til aðildarviðræðna við Evrópusambandið (ESB), ótímabært sé að ræða það. Í viðtali við Morgunblaðið kveðst hún fremur vilja leggja við hlustir í fundaherferð, sem hófst í gærkvöldi. Þið töluðuð á sínum tíma um að þið vilduð kippa málinu úr pólitíkinni og leyfa þjóðinni að ráða ráðum sínum, en Þorgerður [Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra] hefur verið á fullum snúningi og núna ert þú að hella þér út í kosningaferðalag, breyttist eitthvað? „Neinei, alls ekki. Ég áður farið í svona fundaröð í gegnum árin og það hefur verið mér mjög dýrmætt. Einhverjum finnst kannski sérstakt að maður vilji fara og heyra hvað fólk hefur að segja en staðreyndin er bara sú, að sama hvað kemur út úr þessari atkvæðagreiðslu þá munum við þurfa að vinna með það: Ríkisstjórnin, Alþingi, Samfylkingin og þjóðin. Það skiptir mig bara máli að fá sem mesta baksögu núna þegar fólk er komið með þetta svolítið í æðakerfið, heyra hvernig það metur stöðuna. Ég gef auðvitað kost á spurningum líka og mun svara eins og kostur er. En það er mjög hollt að kynna sér sjónarmið fólks, sama hvort það er já- eða nei-megin eða jafnvel bara veit ekki hvað það á að gera.“ Þyrftirðu kannski að fara í aðra hring ferð eftir kosningar til að ræða hvað svo, þegar vitað er hvert stefnir og fólk er orðið rólegra? „Oftast er nú frekar góður andi á svona fundum, en ég hef tekið svona fundi undir alls konar kringumstæðum, t.d. stóran fund um veiðigjöldin á Vestfjörðum síðasta sumar, en fólk kann að meta samtalið og það er bara í takt við hvernig ég hef unnið. Ég mun taka fleiri fundi eftir þetta óháð þessu, svona hef ég bara verið að vinna. Ég vil samt segja að heilt yfir hefur mér þótt umræðan góð. Auðvitað hefur hún stundum verið hörð og fólki þykir hún mismálefnaleg á köflum, en umræðan á Alþingi og í stjórnmálunum er oft ekkert rosalega málefnaleg heldur.“ Framhaldið ótímabær umræða Manni sýnist á öllu að Þorgerði liggi mikið á. Kæmi til greina að ganga í gengissamstarf ERM II, biðstofu evrunnar, ef svarið verður já í sumar? „Mér finnst bara ekki tímabært að ræða slíkt. Ég held að það sé ýmislegt sem kæmi til greina, en við vitum kannski ekkert um í hvaða stöðu við verðum fyrr en [ríkisstjórnin] hefur fengið umboð til þess að halda áfram með þetta mál. Ég held að það séu hins vegar ýmsir kostir í boði fyrir Ísland vegna þess að við erum náin og samþætt ESB fyrir og getum alveg gert hluti sem önnur lönd hafa ekki gert á þessari vegferð. En við erum í upphafi á löngu ferli, því þó að það komi já út úr þessu, samningaviðræður gangi hratt og vel, þá þarf samt að fara í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu og fá annað já. Það þarf að gera stjórnarskrárbreytingar. Það þarf líka að fá aðildarsamning samþykktan hjá hinum ríkjunum, þannig að þetta gerist ekki á einni nóttu.“ Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar telur að kostnaður við aðild gæti verið 20-30 milljarðar króna á ári, en miðað við samninga Svartfellinga, m jög fátækrar þjóðar, gæti það orðið nær 50 milljörðum á ári. Liggja fyrir einhverjar sviðsmyndir um það? „Sviðsmyndin birtist þegar við göngum til aðildarviðræðna og fáum á hreint hvað aðild felur í sér. Getum svo sagt já eða nei í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu þegar það liggur fyrir. Mér finnst í góðu lagi að ræða það að Ísland er í annarri stöðu en fátækari ríki álfunnar. En við höfum líka mikið að græða, t.d. samþættingu í efnahagsmálunum, sér í lagi í myntbandalaginu. Þetta er gríðarlega hagkvæm lausn fyrir okkur að þurfa ekki að reka okkar eigin gjaldmiðil, sem verður ekki auðveldlega metinn til fjár, en ábatinn er víðtækur. Þegar við gengum inn í EES lá alveg fyrir að það myndi kosta okkur. Við tökum upp regluverk, þurfum að þýða mikið, það var lítil stjórnsýsla sem gerði það og við erum beinlínis að borga fyrir EES-aðild. Ekki jafnmikið og Norðmenn, sem halda í rauninni styrkveitingum í EES gangandi, en okkar skerf samt. Þannig að við höfum borgað fyrir alþjóðasamstarf og fengið það margfalt til baka, gleymum því ekki.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Beint streymi: Áfram Ísland fundar á Hvolsvelli „Þetta verður algjört skrímsli“ Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Þetta var ekki klám“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Komin aftur heim í Laugardalinn Sannleikurinn afhjúpaður Helga og Róbert keyptu 198 milljóna íbúð í Vesturbænum Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við hvetjum fólk til að vera heima hjá sér“ Þjófur réðst á Jönu með piparúða: „Ég fríkaði út“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Segir rauðu línuna dregna í auðlindum Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Nýjast á mbl.is » „Þetta var ekki klám“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Komin aftur heim í Laugardalinn Sannleikurinn afhjúpaður Helga og Róbert keyptu 198 milljóna íbúð í Vesturbænum Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við hvetjum fólk til að vera heima hjá sér“ Segir rauðu línuna dregna í auðlindum Fólk komist hraðar á milli staða Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna