- What: Increased air traffic due to solar activity
- Impact: Airports and airlines preparing for higher traffic
Loftrýmisgæsla verður aukin vegna almyrkvans. Fjöldi loftfara verður á sveimi seinni partinn á morgun, aðallega yfir Vestfjörðum. Þyrluþjónustur hafa í nógu að snúast og sölumenn þurfa að svara fólki sem er tilbúið að yfirbjóða þá sem þegar eiga bókaða ferð. „Við erum búin að undirbúa þetta vel,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla ISAVIA. „Við erum búin að vera að undirbúa þetta síðan í mars. Við erum búin að vera í nánu sambandi við almannavarnir og flugrekendur varðandi það flug sem er áætlað og planað á morgun.“ Þjónustutímar á flugvöllum á Ísafirði og Bíldudal hafa verið lengdir og svo er gert ráð fyrir mikilli flugumferð við Rif á Snæfellsnesi. Þá er flugstjórnarmiðstöðin með aukinn viðbúnað. „Vegna aukinnar umferðar í loftrýminu. Við erum búin að hækka viðbúnaðarstigið í flugturninum hérna á Reykjavíkurflugvelli, á Keflavíkurflugvelli og í flugstjórnarmiðstöðinni því það má búast við aukinni umferð í kringum landið á þessum tíma,“ segir Sigrún Björk. Síminn hringir stanslaust hjá þyrlufyrirtækjum og fyrirspurnum rignir inn. Fólk vill komast vestur á firði og lenda á stöðum þar sem engir vegir eru og sumir vilja vera á flugi meðan almyrkvinn er. „Það er því miður alveg fullbókað hjá okkur,“ segir Kristjana Ósk Pálsdóttir í söludeild Norðurflugs. „Og við erum með allar þyrlurnar á lofti allan daginn á morgun, frá morgni til kvölds. Þannig að það er því miður ekki lengur hægt að bóka hjá okkur fyrir morgundaginn.“ Sólmyrkvadagurinn hafi verið uppbókaður í meira en ár. „Kannski eitt og hálft ár. Bókanirnar byrjuðu að koma inn í janúar í fyrra,“ segir Kristjana. Álag vegna fyrirspurna hafi ekki verið meira síðan í eldgosunum á Reykjanesskaga. „Við höfum fengið þó nokkuð mörg símtöl þar sem fólk er að bjóða háar upphæðir til þess að taka við af flugunum sem eru nú þegar og sem sagt borga fyrir þeirra ferð og þá ferð sem þau vilja fá. En því miður þurfum við alltaf að standa við bókanirnar sem eru. Og þá eru bara nokkrir einstaklingar með þyrlurnar yfir allan daginn og þá lenda þyrlurnar bara ekki í Reykjavík á meðan og þá eru þau bara úti allan daginn og á meðan sólmyrkvinn gengur. Og hvað borgar fólk fyrir það? „Ég get nú ekki sagt það en það eru góðar upphæðir. Það eru háar upphæðir,“ segir Kristjana.