- What: New collaboration initiative between startups and businesses
- Impact: Aims to boost innovation and business partnerships
Drift EA hefur formlega sett af stað verkefnið Ignite Nordic á Íslandi en um er að ræða nýtt samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að efla nýsköpun með því að tengja frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila. Í tilkynningu segir að markmið verkefnisins sé að auka samkeppnishæfni fyrirtækja með því að auðvelda þeim að nýta nýsköpun í rekstri sínum, um leið og frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa lausnir sínar í samstarfi við raunverulega viðskiptavini. Verkefnið hefur einnig þann tilgang að auðvelda sprotafyrirtækjum að komast í samband við sína fyrstu stærri viðskiptavini og að styðja fyrirtæki og stofnanir við að finna nýjar lausnir við raunverulegum áskorunum. Sjá einnig Síminn og Drift EA í samstarf „Íslendingar búa yfir miklu hugviti og öflugum frumkvöðlum um allt land. Ein stærsta áskorunin er þó oft að skapa tengslin milli þeirra sem þróa nýjar lausnir og þeirra sem geta nýtt þær. Ignite Nordic er skref í þá átt að stytta þessa leið, efla samstarf og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. „Með Ignite Nordic á Íslandi viljum við skapa markvissan vettvang þar sem fyrirtæki og frumkvöðlar geta fundið hvort annað.“ Verkefnið er leitt af Drift EA á Akureyri í samstarfi við norræna samstarfsaðila, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Háskólafélag Suðurlands (HFSU), KLAK – Icelandic Startups, Sjávarklasann, IceBAN – samtök englafjárfesta á Íslandi og Fjársýsluna. „Með Ignite Nordic á Íslandi viljum við skapa markvissan vettvang þar sem fyrirtæki og frumkvöðlar geta fundið hvort annað og byggt upp samstarf sem leiðir til vaxtar og nýsköpunar,“ segir Sesselja Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA. Ignite Nordic er fjármagnað af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Drift EA, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE) og Háskólafélagi Suðurlands (HFSU).