Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kölluðu lögreglu á vettvang

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.8.2026 | 10:35 Kölluðu lögreglu á vettvang Mótið var haldið fyrir norðan dagana 20.-26. júlí. Útlendum hópi var vísað brott af mótinu, með aðstoð lögreglu, eftir ítrekuð hegðunarbrot. mbl.is/Þorgeir Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki „Mótshaldarar kölluðu lögreglu til aðstoðar þegar vísa þurfti hópi af staðnum. Þeir treystu sér ekki til þess að gera það án okkar aðkomu vegna þeirrar framkomu sem þeir höfðu orðið fyrir.“ Þessum orðum fer Skarphéðinn Aðalsteinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn rannsóknardeildar lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, um þá stöðu sem upp kom á Landsmóti skáta 2026 sem haldið var á Hömrum á Akureyri dagana 20.-26. júlí síðastliðinn. Þannig komu fulltrúar lögreglunnar að því, ásamt barnaverndaryfirvöldum á Akureyri, að ræða við hóp skáta frá Katar og gera þeim grein fyrir því að þeir yrðu að yfirgefa mótsstaðinn. Var þeim í kjölfarið gefið færi á að taka föggur sínar saman meðan öðrum börnum sem sóttu mótið var haldið fjarri. Þessi aðgerð átti sér stað fimmtudaginn 23. júlí en átti sér nokkurn aðdraganda. Frétt af mbl.is Skátaflokki vísað af móti Áreitni í garð stúlkna Þannig tóku umsjónarmenn skátaflokka á mótinu eftir því, skömmu eftir að mótið var sett, að drengjahópurinn frá Katar gaf sig mjög að kvenkyns þátttakendum á mótinu og dæmi voru um að þeir kölluðu eftir óæskilegri líkamlegri snertingu frá þeim. Þá munu einnig hafa komið upp atvik þar sem sömu drengir gengu inn á sturtuaðstöðu þar sem stúlkur áttu einar að hafa aðgang. Heimildir Morgunblaðsins herma að á miðvikudeginum fyrir brottvikninguna hafi mótshaldarar ákveðið að grípa til öryggisráðstafana vegna þessa. Var skáttahópnum katarska veitt tiltal og þess krafist að hann léti af framferði sínu á mótinu. Þá var fjölgað í gæslu og ónafngreindur heimildarmaður lýsir því hvernig „gulum vestum“ hafi fjölgað „gríðarlega svo að eftir var tekið“. Tiltal bar ekki árangur Tilraunir til þess að koma skikki á hópinn báru ekki árangur og í kjölfarið var kallað eftir aðstoð lögreglu. Þegar Skarphéðinn er spurður út í aðkomu barnaverndaryfirvalda segir hann: „Þegar lögreglan grípur til aðgerða þar sem börn eiga í hlut eru barnaverndaryfirvöld alltaf höfð með í ráðum og þau upplýst um stöðu mála.“ Skátar sem voru á mótinu segja að vel hafi verið staðið að því að greiða úr málinu og að það hafi verið gert á sem sársaukaminnstan hátt fyrir alla mótsgesti. Hins vegar hafi mótshaldarar ekki staðið við gefin fyrirheit um að send yrði út yfirlýsing vegna málsins og mun það hafa komið mörgum spánskt fyrir sjónir. Þegar Morgunblaðið leitaði viðbragða skátahreyfingarinnar varð Halldóra Aðalheiður Ólafsdóttir, kynningarmálastjóri Bandalags íslenskra skáta, til svars en á heimasíðu mótsins var hún sögð tengiliður við fjölmiðla. Hún vildi ekki tjá sig en vísaði á Ragnar Þór Þrastarson framkvæmdastjóra bandalagsins. Í tölvupósti sem hann sendi blaðamanni Morgunblaðsins sagði einfaldlega: „Afsaka að hafa ekki náð þér símleiðis. Ég vísa í fyrri yfirlýsingu og bæti ekki við hana.“ Sendu Morgunblaðinu yfirlýsingu Þar vísaði hann til yfirlýsingar sem Halldóra Aðalheiður hafði sent blaðinu í kjölfar fyrrnefnds símtals. Í henni segir orðrétt: „Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.“ Á aldrinum 10 til 17 ára Á landsmótið á Akureyri mættu á þriðja þúsund ungmenni á aldrinum 10-17 ára. Samkvæmt fréttum sem af mótinu hafa borist gekk skátastarfið í alla staði vel en atburðirnir sem leiddu til þess að skátahópurinn frá Katar var rekinn af mótinu vörpuðu óneitanlega skugga á hátíðina. Þegar lögregluyfirvöld eru innt eftir því hvort eftirmál hafi orðið vegna málsins segir Skarphéðinn Aðalsteinsson að svo sé ekki. „Engin rannsókn fór af stað vegna þessa máls af hálfu lögreglu.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Lætur af störfum hjá KSÍ Eru með þyrluna tilbúna í Rifi Eldsvoði í Grafarvogi: Einn fluttur á bráðadeild Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Endurtaka tilraun sem sannaði Einstein Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Nýjast á mbl.is » Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Lætur af störfum hjá KSÍ Eru með þyrluna tilbúna í Rifi Eldsvoði í Grafarvogi: Einn fluttur á bráðadeild Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Elta almyrkvann í 60.000 feta hæð Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Mikill viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna

Share this article