Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.8.2026 | 11:09 | Uppfært 11:25 Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sat fyrir svörum í Reykjanesbæ í kvöld. mbl.is/Eyþór Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Ábati við ESB meiri en kostnaður Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Beint streymi: Áfram Ísland fundar á Hvolsvelli » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sló því föstu í gærkvöldi að 50,1% meirihluti muni duga til að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta ásamt fleiri málefnum kom fram á fyrsta hlustunarfundi forsætisráðherrans sem fram fór í Fjölbrautarskóla Suðurnesja í gær. Fundurinn var þétt setinn. Kristrún stefnir að því að halda hlustunarfundi víðs vegar um landið á næstu vikum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Hún segir fundina góðan vettvang til þess að ræða saman og hlusta hvert á annað. „Þetta hefur hangið yfir okkur í 15 ár og ég veit að það eru margir sem vilja bara klára málið og komast til botns í þessu,“ sagði Kristrún í byrjun fundarins. Kristrún segir ekki gerlegt að reka aðra peningastefnu en Evrópusambandið gerir og styður upptöku evrunnar. mbl.is/Eyþór Margt þurfi að ganga upp Forsætisráðherrann tók það fram að margar forsendur þyrftu að ganga upp áður en Ísland gengi í Evrópusambandið. „Það þarf ekki bara að koma já út úr báðum atkvæðagreiðslunum heldur þarf svo að rjúfa þing og breyta ákvæðum stjórnarskrárinnar. Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er aðeins fyrsta skrefið um það hvort við förum í viðræður. Þær þarf svo að klára og þá tekur önnur atkvæðagreiðsla við. Það eru mörg ef í spilinu.“ Þá sagði hún að samninganefnd yrði stofnuð og Evrópusambandinu gert viðvart hvað varðaði niðurstöðu Íslendinga ef jákvætt svar kæmi út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst. Fundurinn í Reykjanesbæ var þétt setinn. Næsti fundur verður á Eskifirði á morgun, 12. ágúst. mbl.is/Eyþór Segir upptöku evru einfalda viðskipti Aðspurð hvort núverandi ríkisstjórn hefði myndað sér stefnu um upptöku evrunnar sagði Kristrún ekki gerlegt að reka allt aðra peningastefnu en Evrópusambandið gerir. „Ég er þeirrar skoðunar að við ættum að taka upp evru, helst til að einfalda viðskiptalífið hér á landi. Ég held það sé til mikils að vinna að losna við gjaldeyrisálagið og taka sæti við jafnara borð þegar kemur að viðskiptum,“ sagði forsætisráðherrann. Tók hún jafnframt fram að mikið hefði farið fyrir umræðu um kostnað við að sækja um aðild að Evrópusambandinu og að mikilvægt væri að setja þá upphæð í samhengi við annan kostnað. „Það kostar tvo milljarða að gera ýmislegt. Ríkið reiðir gríðarlegan kostnað af hendi til að halda ýmsum möguleikum opnum,“ segir Kristrún og minnist á það að leiðtogafundurinn í Hörpu, sem haldinn var árið 2023, hafi kostað ríkið um tvo milljarða. „Það er ekki hægt að horfa á þetta út frá því hvar við græðum og töpum. Hvers virði er vestræn samvinna? Það er ýmislegt sem ekki er metið til fjár.“ 50,1% meirihluti dugar til Aðspurð hvort 50,1% meirihluti gegn 49,9% minnihluta væri nægilega sterkt lýðræðislegt umboð til að hefja aðildarviðræður sagði Kristrún að draga þyrfti mörkin einhvers staðar. „Þetta væri auðvitað ráðgefandi niðurstaða. Við höfum gefið pólitísk loforð um að virða niðurstöðuna. Þannig virka bara þjóðaratkvæðagreiðslur. Ég get alveg sagt að mér myndi ekkert líða vel með þá niðurstöðu og það væri erfið staða til að vera í, en það verður að draga mörkin einhvers staðar. Eins myndi mér ekki líða vel með það ef 50,1% myndi segja nei. Vonandi endum við ekki í þeirri stöðu en ef það gerist þá mun reyna á þjóðina og stjórnmálin.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Ábati við ESB meiri en kostnaður Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Beint streymi: Áfram Ísland fundar á Hvolsvelli » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvænt orðaður við hollenska landsliðið Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Ábati við ESB meiri en kostnaður Gera ekki breytingar vegna sólmyrkva „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fólk komist hraðar á milli staða Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Skátaflokki vísað af móti Nýjast á mbl.is » Óvænt orðaður við hollenska landsliðið Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir rauðu línuna dregna í auðlindum Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum „Uppselt“ verði að Látrabjargi seinna í dag Elta almyrkvann í 60.000 feta hæð Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fólk komist hraðar á milli staða Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Skátaflokki vísað af móti

Share this article