Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hlutfall lausra starfa eykst lítillega

Read Full Article →

Alls 3.540 störf voru laus á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2026 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Um 247.560 störf voru mönnuð og hlutfall lausra starfa var 1,4% á tímabilinu. Lausum störfum fjölgaði um 500 á milli ársfjórðunga og hlutfall lausra starfa hækkaði um 0,1%. Lausum störfum fækkaði um 1.870 samanborið við annan ársfjórðung 2025 og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,8%. Hlutfall lausra starfa á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var það lægsta síðan árið 2020 þegar það mældist 1,2% á öðrum ársfjórðungi. Gögnin eru byggð á úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar fyrir annan ársfjórðung 2026 sem var 15. maí. 622 svör fengust og svarhlutfall var 88,6%. Niðurstöður eru bráðabirgðatölur og verða endurskoðaðar.

Share this article