Innlent | Morgunblaðið | 12.8.2026 | 12:58 Hefur ekki tölu á öllum sólmyrkvafundunum Gerður Björk og hennar fólk hefur í mörg horn að líta. Ljósmynd/Aðsend Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 „Fólk verður háð þessu“ Vestfirðir: Bjartsýn á að veðurguðirnir svíki ekki Beint: Loksins komið að stóru stundinni Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ » Fleiri tengdar fréttir „Þetta verður skemmtilegt. Ég er orðin mjög spennt fyrir þessu og bjóst ekki við að ég gæti orðið svona spennt fyrir almyrkva,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, en í sveitarfélaginu eiga að vera afar góðar aðstæður til að virða fyrir sér almyrkva á sólu eins og fram hefur komið. Almyrkvi verður síðdegis í dag, sá fyrsti síðan 1954. Að sögn Gerðar er fjöldi gesta kominn á svæðið og eru erlendir gestir áberandi. „Ég hef fylgst svolítið með tölum í umferðinni og hreyfingu á tjaldstæðum. Mikil fjölgun hefur orðið í bænum og maður tekur einnig eftir því að íbúar eru með gesti hjá sér í heimahúsum. Auk þess er fólk að tínast inn á svæðið í kringum Látrabjarg.“ Mikill fjöldi gesta kallar á talsverða vinnu hjá fámennu sveitarfélagi. „Okkur þótti undirbúningurinn fara heldur hægt af stað hjá yfirvöldum en við höfum verið ánægð með hann eftir að hann fór loks í gang. Ég hef ekki tölu á öllum þeim sólmyrkvafundum sem ég hef setið, né í hversu mörgum hópum ég á sæti, vegna skipulagningarinnar. Við höfum verið í samskiptum við íbúana, almannavarnir, ráðuneyti, Markaðsstofu Vestfjarða og ferðaþjónustuaðila svo eitthvað sé nefnt,“ segir Gerður. Hún varð vör við misskilning á eðli málsins til að byrja með. „Þá fannst mér eins og fólk teldi að við værum að skipuleggja viðburð sem við ættum að halda utan um. En við þurftum einfaldlega að vera tilbúin þótt við gætum ekki vitað hversu margir kæmu á staðinn eða hvar besta veðrið yrði á landinu. Vonandi verður upplifunin jákvæð og allir ná að njóta þessarar stundar en um leið að gestir geti nýtt sér það sem svæðið hefur upp á að bjóða.“ Fylgist með í garðinum Margir leggjast á eitt til að þessi sögulegi viðburður geti gengið vel. Vegagerðin er búin að hefla alla vegi að sögn Gerðar og Orkubú Vestfjarða bætti við hleðslustöðvum á Tálknafirði, Patreksfirði og Króksfjarðarnesi. Níu tjaldsvæði eru í Vesturbyggð en sveitarfélagið rekur þrjú þeirra; á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal. „Við höfum gert ráð fyrir heilmiklu plássi fyrir tjöld og bætt við salernum. Við munum auk þess opna félagsheimilin til að fólk geti fengið þar aðstöðu. Nú eru allir að búa sig undir að geta veitt góða þjónustu. Þau sem selja veitingar á svæðinu eru að laga sig að því að hér verði mikill fjöldi. Þau eru að einfalda matseðla til að geta afgreitt hratt enda gæti komið upp sú staða að þau selji mun fleirum en sætarýmið býður upp á.“ Þegar blaðið ræddi við bæjarstjórann í gær var veðurspáin prýðileg fyrir svæðið en þó ekki alveg jafngóð og veðrið hefur verið síðustu daga á sunnanverðum Vestfjörðum. Hvar ætlar Gerður sjálf að fylgjast með sólmyrkvanum? „Ég reikna með að vera í garðinum heima hjá mér. Ég bý svo vel að vera nánast við fjöruborðið og þar verður örugglega dásamlegt að vera.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 „Fólk verður háð þessu“ Vestfirðir: Bjartsýn á að veðurguðirnir svíki ekki Beint: Loksins komið að stóru stundinni Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Símar ekki undanskildir hættu sólmyrkvans Arnór nýr fyrirliði Valsmanna Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Huge excitement over solar eclipse on Snæfellsnes Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Uppselt“ verði að Látrabjargi seinna í dag Spennan yfir sólmyrkva ógurleg á Snæfellsnesi Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Kristrún segir 50,1% meirihluta duga til Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Eldsvoði í Grafarvogi: Einn fluttur á bráðadeild Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Skátaflokki vísað af móti Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Sá þriðji færður fyrir dómara Nýjast á mbl.is » Símar ekki undanskildir hættu sólmyrkvans Arnór nýr fyrirliði Valsmanna Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Huge excitement over solar eclipse on Snæfellsnes Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki 80 ára sjálfstæði Indlands – Samband við Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Rannsaka eðli sólarinnar frá Íslandi „Uppselt“ verði að Látrabjargi seinna í dag Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Gætu þurft að loka Hvalfjarðargöngum seinna í dag Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Eldsvoði í Grafarvogi: Einn fluttur á bráðadeild Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Skátaflokki vísað af móti Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Sá þriðji færður fyrir dómara