Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðhald á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefst aftur í næstu viku

Read Full Article →

Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á þjóðvegi 1, hringveginum, verður lokuð fyrir umferð hluta dagsins frá og með mánudeginum 17. ágúst vegna viðhalds. Gert er ráð fyrir að unnið verði fram í miðjan september svo hægt sé að ljúka þeim verkum sem til stóð að klára í sumar en aðgerðirnar eru háðar veðri. Vegagerðin greinir frá þessu í tilkynningu. Unnið verður alla virka daga frá klukkan átta á morgnana til klukkan 19 á kvöldin. Á þessu tímabili verður opnað fyrir umferð fjórum sinnum á dag. Ekki er hægt að sinna viðhaldinu að nóttu til því þá er loftraki of mikill. Í tilkynningu segir Vegagerðin að lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga. Hægt verði að opna fyrir umferð um brúna með skömmum fyrirvara. „Brúin var byggð árið 1947 og burðarþolið hefur minnkað í áranna rás. Ryðmyndun í köplum er orðin nokkur og því afar mikilvægt að stöðva þá þróun með því að klára þessa vinnu fyrir veturinn.“

Share this article