Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir lögregluna vel undirbúna fyrir sólmyrkvann. Atburðurinn sé einstakur að því leyti að fátt sé fast í hendi. „Ég hef skipulagt marga viðburði en það eina sem við höfum fast í hendi á höfuðborgarsvæðinu er að það verða sjö þúsund manns á Víðistaðatúni þannig að við verðum eiginlega bara að fylgjast með hvernig restin verður,“ segir Ásgeir sem var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2. „Fólk þarf hvorki að skrá sig né kaupa sig inn á viðburðina á höfuðborgarsvæðinu þannig að við verðum með mikið og öflugt lið sem við ætlum að reyna að deila út á þessa staði sem hafa verið nefndir. Svo erum við með annað lið sem við getum fært á milli til að stoppa í götin.“ Skynsamlegt að vera ekki mikið á ferðinni Búast má við einhverjum töfum á umferð á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegið. Ásgeir segir mikilvægt að ökumenn séu þolinmóðir. „Það er ekkert víst en það þarf að fylgjast með umferð. Kannski bara að skipuleggja sig vel og fara tímanlega af stað ef þú þarft að vera á einhverjum stað á ákveðnum tíma.“ Á meðan almyrkvinn varir verður niðadimmt um hábjartan dag í einhvern tíma. Götulýsing verður einungis á götum þar sem hámarkshraði er meira en 60 kílómetrar á klukkustund. Ásgeir segir akstursaðstæður því óvanalegar og brýnt að ökumenn taki mið af því og keyri varlega. „Það væri mjög skynsamlegt að vera ekki mikið á ferðinni. Það verður mikið af gangandi fólki og mikið af börnum. Ég held það sé mjög skynsamlegt að hreyfa sem minnst við ökutækjum inni í hverfunum yfir hámyrkvann.“