Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vextir geti lækkað á næsta ári

Read Full Article →

Greiningardeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir að Seðlabanki Íslands hækki stýrivexti um 0,25% í næstu viku og að meginvextir bankans fari þar með í 8%. Greiningin telur raunar líklegra að peningastefnunefnd velti fyrir sér hálfs prósentustigs hækkun en að vextir verði látnir standa í stað. Bankinn byggir matið fyrst og fremst á þrálátri verðbólgu og háum verðbólguvæntingum. Verðbólga hefur verið yfir 5% allt frá áramótum og hækkaði úr 5,1% í maí í 5,2% í júní og var 5,3% í júlí. Bráðabirgðaspá greiningardeildarinnar gerir ráð fyrir að verðbólga verði 5,4% í ágúst og 5,5% í september. Eitt stærsta áhyggjuefnið fyrir Seðlabankann nú er þróun kjarasamninga. Forsenduákvæði um að verðbólga yrði komin undir 4,7% í ágúst mun nær örugglega ekki halda. Þar með virkjast endurskoðunarákvæði í flestum helstu kjarasamningum og mögulegt er að laun hækki meira um næstu áramót en núgildandi samningar gera ráð fyrir. Vaxtalækkanir gætu hafist næsta vor Ef verðbólgu- og efnahagsspár Íslandsbanka reynast nærri lagi og stýrivextir verða 8% eftir ákvörðun peningastefnunefndar 19. ágúst telur bankinn líklegt að vextir haldist í 8% út árið. Ekki eru frekari hækkanir í október eða nóvember þó útilokaðar ef verðbólgan reynist þrálátari en nú er gert ráð fyrir. Svigrúm til vaxtalækkunar gæti skapast á næsta ári. Íslandsbanki gerir ráð fyrir að vaxtalækkanir hefjist fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2027, að því gefnu að verðbólga hjaðni, vinnumarkaðurinn kólni áfram og jafnvægi aukist á húsnæðismarkaði. Samkvæmt spánni gæti vaxtalækkunarferlinu lokið um mitt ár 2028, þegar stýrivextir yrðu komnir niður í um 6%.

Share this article