Fylgi Miðflokksins í Reykjavíkurborg hækkaði um 1,1% milli mánaða samkvæmt nýjustu könnun Maskínu um fylgi flokka fyrir borgarstjórnarkosningar. Miðflokkurinn mældist með 11% fylgi í febrúar samanborið við 10,1% fylgi í janúar. Miðflokkurinn hefur jafnframt birt nöfn frambjóðenda sinna í fyrstu tólf sætunum í Reykjavík. Ari Edwald er í fyrsta sæti en Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir er í öðru sæti. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn misstu hins vegar fylgi milli mánaða en Samfylkingin mældist með 24% fylgi í febrúar samanborið við 26,1% fylgi í janúar. Sjálfstæðisflokkurinn er sömuleiðis með 22,7% fylgi í febrúar en var með 24,4% fylgi í mánuðinum þar á undan. © Skjáskot (Skjáskot) Viðreisn situr eftir með 13,5% fylgi og er Vinstrið með 9,1% fylgi. Framsóknarflokkurinn er þá með 5,1% fylgi og hækkuðu Píratar fylgi sitt úr 3% í 5,5%.