Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir einboðið að rýna í athugasemdir sem ÖSE gerir við eftirlit með þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok mánaðarins. Í nýrri skýrslu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, kemur fram gagnrýni á eftirlit með þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Sérstaklega varðandi gloppur í íslenskri löggjöf sem snúa að eftirliti með fjármögnun baráttuhópa. Engin leið sé til að fylgjast með hvaðan fjármagn til já- og nei-baráttuhópanna komi. Þorbjörg segir aðalatriðið vera að í skýrslunni komi fram að fullt traust sé til íslenskra stjórnvalda um framkvæmd kosninga. Hún segir athugasemdir ÖSE teknar alvarlega. „Það að fjármögnun sé með þessum hætti, mér finnst það ekki gott, þannig að mér finnst algerlega einboðið að rýna þessar athugasemdir alvarlega og að fara í að endurskoða löggjöf fyrir seinni atkvæðagreiðsluna, komi nú til hennar,“ segir Þorbjörg. Heimssýn og Evrópuhreyfingin fengu úthlutað 10 milljónum króna en síðan þá hafa komið fram aðrir hópar. Þorbjörg segist ekki ætla að svara fyrir það hvort hreyfingar sem sprottið hafi upp síðar eigi ekki rétt á sama framlagi. Hún segir að greiðslunum til Heimssýnar og Evrópuhreyfingarinnar hafi verið háttað svona til þess að jafna leikinn og til að gagnsæi væri um þessi mál. „Svona eru leikreglurnar núna og svo skoðum við framhaldið fyrir seinni þjóðaratkvæðagreiðsluna.“ Dómsmálaráðherra tekur athugasemdum ÖSE við eftirlit með þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok mánaðarins alvarlega. Endurskoða þurfi löggjöfina fyrir seinni þjóðaratkvæðagreiðsluna, komi til hennar. Svona séu leikreglurnar núna.