Malbikunarframkvæmdum á Suðurlandsvegi verður seinkað til klukkan 09:30 í fyrramálið, fimmtudag, vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Colas sem sér um framkvæmdirnar. Framkvæmdir halda svo áfram í kvöld, fimmtudagskvöldið 13. ágúst, frá kl. 21:00 -07:00 samkvæmt áætlun. Annarri akreininni er lokað á meðan á framkvæmdum stendur á um 1,3 km kafla við Bitru. Hliðavegir eru lokaðir tímabundið á meðan farið er framhjá. Umferð verður stýrt framhjá framkvæmdasvæðinu og merkingar settar upp. Til stóð að malbikunarframkvæmdirnar færu fram miðvikudagskvöldið 12. ágúst frá klukkan 21:00 til 07:00 að morgni fimmtudags 13. ágúst, en þeim framkvæmdum verður seinkað eins og áður segir vegna veðurs. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.