Bráðabirgðastjórn Venesúela og fulltrúar stjórnarandstöðunnar luku fyrstu umferð viðræðna í gær. Viðræðunum er ætlað að sætta þjóðina eftir að Nicolas Maduro, fyrrum forseti landsins, var handtekinn af Bandaríkjastjórn í janúar og steypt af stóli. Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að bráðabirgðastjórnin og fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafi samþykkt að hefja umbætur á dómskerfinu og í ljósi mannskæðu jarðskjálftanna 24. júní, vinna að því að fá aðgang að frystum eignum sem eru sagðar geymdar í Seðlabanka Englands. Vilja fá aðgang að frystum eignum Hæstiréttur Venesúela staðfesti endurkjör Madúros árið 2024, þrátt fyrir alvarlegar ásakanir um kosningasvik og engar opinberar tölur um niðurstöður kosninganna. Undir hans stjórn reyndu stjórnvöld ítrekað að fá aðgang að frystum eignum landsins en án árangurs. Í yfirlýsingunni var talað um að eftirlit verði komið á með fjármagninu til að tryggja gagnsæi, rekjanleika og endurskoðun svo féð verði notað á réttan hátt. Machado tekur ekki þátt í viðræðunum Delcy Rodriguez, settur forseti Venesúela, tók þátt í viðræðunum fyrir bráðabirgðastjórnina, auk bróður síns, Jorge Rodriguez sem er forseti þingsins. Dinorah Figuera er fulltrúi stjórnarandstöðunnar í viðræðunum. Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar og friðarverðlaunahafi Nóbels, tekur ekki þátt í viðræðunum en hún er í útlegð. Hún hefur þó sagt að hún ætli ekki að standa í vegi fyrir viðræðunum. Stjórnarandstaðan vill frelsa landið Margir Venesúelabúar vonast til þess að viðræðurnar leiði til lýðræðislegra kosninga. Figuera segir að stjórnarandstaðan taki þátt í viðræðunum fyrir lýðræðið og til að frelsa Venesúela. Tugir stuðningsmanna stjórnarandstöðunnar komu saman fyrir utan hótelið í Caracas þar sem viðræðurnar fóru fram. Nafnlaus heimildamaður sagði við AFP fréttaveituna að margir líti á Machado sem leiðtoga stjórnarandstöðunnar og rödd Venesúelabúa. Sumir fréttaskýrendur telja að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi beitt sér gegn endurkomu Machado til Venesúela en stjórnvöld í Washington neita því. Bandaríkjaforseti hefur margoft lýst yfir ánægju sinni með stjórn Rodriquez.