Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Víða úrkoma við ströndina og þokuloft

Read Full Article →

Yfir landinu er allmikil lægð sem þokast norðaustur. Henni fylgir dálítil rigning eða súld víða um land og þokuloft, einkum við sjávarsíðuna. Úrkomulítið suðvestanlands eftir hádegi þegar lægðin verður komin út af Norðausturlandi. Norðlæg eða breytileg átt í dag, 5 til 13 metrar á sekúndu, hvassast úti fyrir Vestfjörðum. Hiti á bilinu 8 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Gengur í norðankalda á morgun og léttir smám saman til á Suður- og Vesturlandi og rofar síðan til norðaustanlands um kvöldið. Um helgina þokast hæðarhryggur yfir landið og stefnir því í hæglætisveður, stöku skúri sunnanlands, en bjart með köflum norðan heiða. Á mánudag er þó útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með rigningu sunnan til, en áframhaldandi hlýindum.

Share this article