Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

71% á móti aðildarviðræðum við ESB

Read Full Article →

Í lok mánaðar, laugardaginn 29. ágúst fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort ganga skuli á ný til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Samkvæmt niðurstöðu könnunar Gallup fyrir hreyfinguna Áfram Ísland, sem greint var frá í síðustu viku, verður mjög mjótt á munum. Enginn munur var á fjölda þeirra sem ætla að segja já og þeirra sem ætla að segja nei. 46% þátttakenda eru andvígir aðildarviðræðum og jafn stórt hlutfall hlynnt. 8% þátttakenda eru svo enn óákveðnir um hvoru megin atkvæði þeirra fellur á kjördag. Afstaða þátttakenda í markaðskönnun Viðskiptablaðsins til efnis þjóðaratkvæðagreiðslunnar er öllu meira afgerandi. Þannig kveðst rúmlega 71% þátttakenda í markaðskönnun Viðskiptablaðsins ætla að kjósa gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Fimmtungur kveðst aftur á móti ætla að greiða atkvæði með aðildaviðræðunum. Tæplega 6% þátttakenda eru óákveðnir um hvort þeir muni kjósa já eða nei og loks vildi 3% þeirra ekki gefa upp hvoru megin atkvæði þeirra muni falla. Könnunin var send á 288 markaðs- og greiningaraðila og bárust 80 svör sem jafngildir tæplega 28% svarhlutfalli. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article