Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Inga Sæland minnkar við sig

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.8.2026 | 8:30 | Uppfært 8:46 Inga Sæland minnkar við sig Menntamálaráðuneytið hefur verið á hrakhólum síðan það harktist af Sölfhólsgötu 2 vegna myglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Mygla í húsnæði Loka húsnæðinu vegna myglu Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Galli í útveggjum og mygla leiddi ekki til bóta Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Gæti þurft að loka öllum skólanum vegna myglu » Fleiri tengdar fréttir Barna- og menntamálaráðuneytið greiðir 5.950 kr. á mánuði fyrir hvern fermetra leiguhúsnæðis á Kalkofnsvegi 2, en greiddi áður 3.856 kr. á mánuði fyrir fermetrann í núverandi húsnæði í Borgartúni 33. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins um ástæður flutnings ráðuneytisins og kostnað vegna þess. Áður hafði ráðuneytið svarað fyrirspurnum blaðsins þannig að með þessum breytingum spöruðust rúmar 260 þúsund krónur á mánuði. Skýringin er sú að ráðuneytið verður í helmingi minna húsnæði en áður. Á hrakhólum vegna myglu Í síðari svörum ráðuneytisins til blaðsins kemur fram að húsnæðið á Kalkofnsvegi 2 sé 1.140 fm á móti 2.232 fm í Borgartúni 33. Þetta hafi verið hægt m.a. vegna umtalsverðrar fækkunar stöðugilda í ráðuneytinu og vegna betra skipulags nýja húsnæðisins. Flutninga ráðuneytisins má rekja til þess að í Sölvhólsgötu 2, þar sem ráðuneytið var áður til húsa, komu upp mygla og rakaskemmdir sem varð til þess að starfsemin var flutt í Borgartún 33, eftir að starfsaðstæður í Sölvhólsgötu 2 voru metnar óviðunandi vegna myglu og rakaskemmda. Húsnæðið í Borgartúni 33 er leigt af Landsbankanum og gildir húsaleigusamningurinn til 30. apríl 2032. Sex ár eru því eftir af leigusamningnum. Því var spurt hvort búið væri að ráðstafa húsnæðinu í Borgartúni og koma því í leigu, eða hvort það myndi standa ónotað í einhvern tíma. Í skoðun hver nýtir húsnæðið Í svari ráðuneytisins kemur fram að hjá Framkvæmdasýslu ríkisins fari nú fram athugun á því hvaða stofnanir geti nýtt húsið, og komi nokkrir kostir þar til greina. „Fyrsta athugun gefur til kynna að tvær stofnanir geti komið sér fyrir í Borgartúni. Verði það niðurstaðan mun það leiða til lækkunar á húsnæðiskostnaði þeirra stofnana. Ekki er útlit fyrir að húsnæðið muni standa autt eftir brotthvarf ráðuneytisins. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur nú þegar tekið yfir hluta af húsnæði ráðuneytisins í Borgartúni, en sú ráðstöfun er til bráðabirgða.“ Leiguverð í Borgartúni er um 9,3 m.kr. á mánuði eða um 111 m.kr. á ári. Leiguverð á Kalkofnsvegi er 7,6 m.kr. á mánuði eða tæplega 91 m.kr. á ári. „Ofan á leiguverðið á Kalkofnsvegi 2 bætist virðisaukaskattur sem rennur aftur í ríkissjóð, en hann er rúmlega 17 m.kr. á ári,“ segir í svari ráðuneytisins og að ráðuneytið muni ekki bera kostnað af Borgartúni 33 að flutningi loknum. Ekki kemur fram í svarinu hver beri kostnað af leigusamningnum eftir að ráðuneytið flytur, því eins og áður segir eru sex ár eftir af samningnum. Lægri kostnaður við ferðir Ráðuneytið tekur fram að ýmis hagræðing felist í því að hafa starfsemina nær öðrum ráðuneytum, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og Alþingis. „Í þessu samhengi má nefna lægri kostnað við ferðir til og frá fundum vegna mikilla samskipta við önnur ráðuneyti á Stjórnarráðsreitnum og betri nýtingu á tíma starfsmanna.“ Leigusamningi á Kalkofnsvegi 2 lýkur 20. september 2031 en húsnæðið var óinnréttað þegar samningur var undirritaður. Nú er verið að innrétta hæðina með þarfir ráðuneytisins í huga og stendur leigusalinn straum af þeim kostnaði eftir því sem fram kemur í svarinu. Úr því að hægt er að fækka fermetrum um 1.100 þá vaknar spurning um hvaða viðmið er notað um fjölda fermetra fyrir hvern starfsmann og hvað verða margir femetrar á starfsmann á Kalkofnsveginum? „Stuðst var við viðmið fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Viðmiðið er 18 fm á hvert stöðugildi að hámarki þegar um nýbyggingu er að ræða og 20 fm á hvert stöðugildi að hámarki þegar um endurgerð á eldra húsnæði er að ræða. Húsnæðið að Kalkofnsvegi er 1.140 fm. Um 65 manns verða starfandi á skrifstofunni. Fermetrar á hvern starfsmann eru því í samræmi við viðmið 17,5 fm / starfsmann.“ Hver óskaði eftir flutningunum? „Ákvörðunin var tekin af menntamálaráðuneytinu, fjársýslu ríkisins og FSRE að flytja ráðuneytið aftur í miðbæinn. Flutningurinn í Borgartúnið var tímabundin ráðstöfun vegna myglu í húsnæði ráðuneytisins á Stjórnarráðsreitnum. Undirstofnanir höfðu ekki aðkomu eða áhrif á ákvörðun um flutning ráðuneytisins í miðbæinn,“ segir að lokum í svari mennta- og barnamálaráðuneytisins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Mygla í húsnæði Loka húsnæðinu vegna myglu Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Galli í útveggjum og mygla leiddi ekki til bóta Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Gæti þurft að loka öllum skólanum vegna myglu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lögsækja Trump vegna áskriftarþjónustunnar Nálgast kaup á leikmanni City Inga Sæland minnkar við sig Atvinnuleysi stendur í stað milli mánaða NBA-stjarna hættir Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Virðing fyrir verðmætasköpun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bílvelta á Vesturlandi: Umferðin farin að þyngjast Vestfirðir: Bjartsýn á að veðurguðirnir svíki ekki Allt klárt fyrir almyrkvann í Mosfellsbæ Óspennandi að horfa til himins nema gegnum glæra regnhlíf Mest lesið Í gær Í vikunni Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Gestir sáu almyrkvann: „Nú er bara að fagna“ Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Myndir: Almyrkvinn sást vel frá Látrabjargi Maðurinn sem lést var íslenskur Þurfti lögreglu eftir að hafa læst sig inni í bíl Myndskeið: Sjónarspil við Barðaströnd Póstburðargjöldin hækka enn á ný Malbikunarframkvæmdum frestað vegna veðurs Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Nýjast á mbl.is » Lögsækja Trump vegna áskriftarþjónustunnar Nálgast kaup á leikmanni City Inga Sæland minnkar við sig Atvinnuleysi stendur í stað milli mánaða NBA-stjarna hættir Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Virðing fyrir verðmætasköpun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leyfilegt að grilla á almyrkva Bílvelta á Vesturlandi: Umferðin farin að þyngjast Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsmálsins Pöntuðu flug fyrir þremur árum Mest lesið Í gær Í vikunni Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Gestir sáu almyrkvann: „Nú er bara að fagna“ Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Myndir: Almyrkvinn sást vel frá Látrabjargi Maðurinn sem lést var íslenskur Þurfti lögreglu eftir að hafa læst sig inni í bíl Myndskeið: Sjónarspil við Barðaströnd Póstburðargjöldin hækka enn á ný Malbikunarframkvæmdum frestað vegna veðurs Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara

Share this article