Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stefnir í virkilega erfiðar viðræður

Read Full Article →

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Verkalýðsfélags Akraness, segir nokkuð öruggt að forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði muni bresta. SGS, Efling, Samiðn og Byggiðn hafi tekið verulega áhættu á sínum tíma og gert tilraun til þess að skapa skilyrði til lækkunar verðbólgu og vaxta í framhaldinu með því að gera hófstillta kjarasamninga til fjögurra ára. Það hafi verið gert á þeim forsendum að allir myndu róa í sömu átt, sem hafi verið raunin fyrst um sinn. „En þegar blekið er þornað þá byrja menn að róa í allt aðra átt og skilja þá sem voru tilbúnir til að axla þessa ábyrgð algjörlega eina eftir úti á rúmsjó,“ segir Vilhjálmur en fyrirtæki, stjórnvöld og sveitarfélög hafi ekki haldið aftur af verðhækkunum með þeim hætti sem þurft hefði. Samtal milli Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar í sumar hafi fyrst og fremst miðað að því að koma í veg fyrir forsendubrest, sem hafi ekki tekist. Stéttarfélögin þurfi að vega og meta hver viðbrögðin verða þegar og ef forsendurnar bresta. „Íslenskt verkafólk mun taka ákvörðun um það hvað verður gert, þetta er þeirra kjarasamningur, það eru þau sem lögðu þetta á sig. Við verðum bara að sjá hver niðurstaðan verður, en staðan er ekki góð,“ segir Vilhjálmur. Spurður hvort reynslan geri það að verkum að viðræðurnar verði erfiðari í þetta skiptið svarar Vilhjálmur því afdráttarlaust játandi. Fólk sé skaðbrennt og trúverðugleikinn farinn, sem geri það að verkum að erfitt sé að sannfæra fólk um að fara í sömu vegferð aftur. „Hvers er hægt að ætlast til þegar fólkið sem leggur allt á sig og semur með þessum hætti, er tilbúið til þess að taka áhættu, er síðan svikið? Hvernig á að byggja þetta traust upp aftur gagnvart atvinnulífinu, gagnvart stjórnvöldum, gagnvart sveitarfélögum og svo framvegis? Það er vitað mál á hverjum þetta ástand bitnar langmest, það er á fólkinu sem minnst hefur á milli handanna,“ segir Vilhjálmur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article