Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Röðin í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli nær út fyrir flugstöðina

Read Full Article →

Langar raðir hafa myndast á Keflavíkurflugvelli í dag, svo langar að þær ná út fyrir flugstöðvarbygginguna. Samkvæmt ábendingu sem fréttastofu barst virðist ekki vera álag í innritun en röðin í öryggisleitina hlykkist um allan brottfararsalinn. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, telur að sterkar líkur séu á að ástandið sé tilkomið vegna mikils fjölda erlendra ferðamanna sem er á heimleið eftir að hafa horft á sólmyrkvann. Hann gat ekki sagt til um hvort fjöldi brottfara væri meiri í dag en gengur og gerist á þessum tíma ársins. Spurður að því hvort Isavia hefði getað gert eitthvað til að koma í veg fyrir þetta segir Guðjón þetta hafa verið viðbúið. Alltaf geti myndast teppur þegar margir koma í flugstöðina á sama tíma. „Það sem getur spilað inn í er að margar vélar eru að fara á svipuðum tíma. Ef stórir hópar koma á sama tíma þá getur það haft áhrif. Við biðjum fólk að vera viðbúið því að það geti verið langar raðir í öryggisleitina.“ Guðjón gat ekki sagt til um hver meðalbiðtími í öryggisleit væri. Hann segir allar stöðvar í öryggisleitinni mannaðar.

Share this article