Áhöfn björgunarskipsins Guðmundar í Tungu sótti veikan ferðamann á Tjaldtanga á Folafæti sem er ysti tangi á Hesti, sem skilur að Seyðisfjörð og Hestfjörð í Ísafjarðardjúpi. Ferðamennirnir, sem voru í kajakferð um djúpið, höfðu komið upp tjöldum á Tjaldtanga sem er utan alfaraleiðar og því eina leiðin að sjúklingnum sjóleiðin. Í tilkynningu Landsbjargar segir að ekki hafi verið talið að viðkomandi væri alvarlega veikur en var hann fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Aðsend / Landsbjörg Útkallið er það fimmta frá 19. júlí s.l. sem að Guðmundur í Tungu sinnir sjúkraflutningum í Ísafjarðardjúpi.