Lilja D. Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins og segir mikilvægt að Íslendingar varðveiti sjálfstætt ákvörðunarvald á lykilsviðum. Samstarf án aðildar að ESB sé íslenska leiðin. Þetta kemur fram í grein hennar í Viðskiptablaðinu í gær, í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við ESB. Lilja segir afstöðu sína ekki byggjast á andstöðu við Evrópu. Ísland eigi áfram að eiga náið samstarf við Evrópuríki, meðal annars í gegnum EES-samninginn, sem tryggi víðtækan aðgang að innri markaði sambandsins. Hún leggur sérstaka áherslu á fullveldi og yfirráð yfir náttúruauðlindum. Við ESB-aðild yrði meira ákvörðunarvald fært til stofnana sambandsins og íslenskur sjávarútvegur og landbúnaður féllu undir sameiginlega stefnu ESB. Að mati Lilju vegur sjálfstætt forræði Íslands á þessum sviðum þungt. Þá segir hún sjálfstæða viðskipta- og peningastefnu skapa Íslandi mikilvægan sveigjanleika. Með aðild að ESB yrði Ísland hluti af tollabandalagi sambandsins og gæti ekki lengur gert sjálfstæða fríverslunarsamninga. Hún hafnar jafnframt því að krónan sé sá dragbítur sem stundum sé haldið fram og segir sjálfstæðan gjaldmiðil geta virkað sem höggdeyfi fyrir lítið og sérhæft hagkerfi. Lilja bendir einnig á að Evrópa standi frammi fyrir áskorunum vegna hægs hagvaxtar, öldrunar samfélaga og vaxandi útgjaldaþrýstings. Niðurstaða hennar er að Ísland geti áfram sameinað náið samstarf við Evrópu, vestrænt öryggissamstarf og sjálfstæði í auðlinda-, viðskipta- og efnahagsmálum án aðildar að ESB. Grein Lilju birtist í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið hana í heild hér .