Bjarni Daníel – Sömu augu Tónlistarmaðurinn Bjarni Daníel hefur sent frá sér lagið Sömu augun sem verður að finna á væntanlegri sólóplötu hans, Dísel, sem kemur út í haust hjá Blöðrunni. Lagið er frumsamið og honum til aðstoðar við flutning og frágang eru Árni Hjörvar Árnason, Ernir Ómarsson, Stirnir Kjartanssson og Kevin Turry. Undiraldan fimmtudaginn 13. ágúst Það eru fjölbreytt yrkisefni hjá tónlistarfólkinu okkar þessa vikuna í Undiröldunni. Boðið var upp á allt frá lifandi latínódjassi yfir í tregafullt tilvistarkreppurokk með viðkomu í dansvænu rasshristandi nútímapoppi. Bubbi Morthens – Ég er tilbúinn Plata Bubba Morthens Ég er ekki sá sem þú heldur, ég er sá sem ég er kom út í maí og þar er að finna hans nýjasta söngul Ég er tilbúinn. Lagið er eftir Bubba, Magnús Örn Magnússon er á slagverk og trommur, Halldór Gunnar Pálsson spilar á bassagítar, forritun, taktsmíðar, hljómborð og rafgítar. Markús & The Diversion Sessions – Let Light In Markús & The Diversion Sessions er hljómsveit sem starfað hefur með hléum frá árinu 2010 og átt nokkur vinsæl lög í útvarpi. Þeirra nýjasta er Let Light in en það verður að finna á þröngskífu sveitarinnar Call It a Day þar sem leitast er við að búa til stærri og hrárri hljóm eftir mannabreytingar. Lea – Frá stjörnunum í vatnið falla tár mín Lagið Frá stjörnunum í vatnið falla tár mín er það fyrsta af væntanlegri breiðskífu hljómsveitarinnar Leu sem ber titilinn Af hverju elska ég svona? Lagið fjallar um söknuð eftir einhverjum sem er ekki lengur til staðar, og nándinni sem þögnin ber með sér. Lea er mönnuð af þeim Katrínu Leu, Erlendi Snæ og Láru Ruth sem hafa síðastliðið ár unnið að plötunni. Una Mist Óðinsdóttir – Kuðungur Una Mist Óðinsdóttir hefur sent frá sér eigið lag og ljóð sem heitir Kuðungur. Lagið skilgreinir hún sem alternative popp en það var hún sjálf sem framleiddi og hljóðblandaði en Ole Breuer hljómjafnaði. Yungamli – Klikkað Brandarakallarnir Tumi Björnsson og Jóhann Steinn Gunnlaugsson sem skipa dúettinn Yungamli hafa sent frá sér lagið Klikkað. Lagið sver sig í átt við dægursmell þeirra Pungur á klúbbnum, með áleitnum texta um rótleysi æskunnar, léttur á bárunni með alvarlegum undirtón. Spacestation – Lightspeed Hljómsveitin Spacestation sendi út vitlaust lag í síðustu viku en bætir úr því hér með laginu Lightspeed af plötu sinni Who Killed Spacestation sem er í vinnslu en lagið er eftir Björgúlf Jes Einarsson. Undiraldan þriðjudaginn 11. ágúst Það eru fjölbreytt yrkisefni hjá tónlistarfólkinu okkar þessa vikuna í Undiröldunni. Boðið var upp á allt frá lifandi latínódjassi yfir í tregafullt tilvistarkreppurokk með viðkomu í dansvænu rasshristandi nútímapoppi. Los Bomboneros y sus bombasticos x GDRN – Sundhetjan Þann 5. ágúst kom út platan Los Bomboneros y sus bombasticos spila Tómas R. Einarsson á streymisveitum og geisladiski. Á plötunni eru lög eftir Tómas í útsetningu fyrir 20 manna stórsveit sem spilaði í Salnum í Kópavogi í fyrra en opnunarlag plötunar er Sundhetjan sem GDRN syngur. Auðunn Lúthersson – Geneva! Geneva! er nýjasta lag Auðuns Lútherssonar sem er einnig þekktur sem Auður. Auðunn er nífaldur verðlaunahafi ÍSTÓN og þekktur fyrir lögin sín Enginn eins og þú, Freðinn og Tárin falla hægt. Í laginu Geneva! mætast stórir gítarar, eyðimörkin, upplífgandi taktur og þrá en það er Auðunn sem spilar sjálfur á öll hljóðfæri og syngur. Aldís Fjóla, Halldór Sveinsson – Cool Moves Frá suðrænum latíntónum förum við í djasskotið popprokk frá þeim Aldísi Fjólu Borgfjörð Ásgeirsdóttur og Halldóri Sveinssyni. Lagið sem þau flytja er Cool Moves en það er Aldís Fjóla sem syngur og gerði textann en Halldór á lagið. Laufkvist – Light Post Laufkvist hafa sent frá sér lagið Light Post sem er innblásið af lagasmíðum Nicks Drake. Lagið segir sögu af fólki í göngutúr seint um kvöld þar sem ljósastaurarnir lýsa upp göturnar og fram hjá þeim gengur eldri maður. Þau fara að velta því fyrir sér lífi mannsins og það verður að texta lagsins. Skýjaglópur – Plúsar Skýjaglópur er rappari og pródúser sem hefur verið að gera ýmislegt undir mismunandi viðurnefnum síðustu ár. Nýjasta lag hans Plúsar er af væntanlegu þröngskífunni Mixtúru sem kemur út 21. ágúst og fékk nafnið frá því að blanda saman nýja og gamla skóla hipp hoppsins. Daníel Dagur x UB – Barnsfaðir Útgáfan Sticky hefur sent frá sér lagið Barnsfaðir en höfundar bæði lags og texta eru þau Unnur Borg Ólafsdóttir, Daníel Dagur Hermannsson, Mio Storaasen Högnason, Davíð Fannar Ragnarsson og Fannar Karl Atlason en það eru þau Unnur Borg og Daníel sem rappa og syngja lagið. Ísak Már Jónsson – Kominn inn Ísak Már Jónsson hefur sent frá sér lagið Kominn inn. Hann er sjálfstæður tónlistarmaður frá Hafnarfirði sem hefur verið að semja tónlist í nær átta ár. Hann segist lengi hafa verið að pródusera fyrir aðra, bæði innanlands og utanlands, en fyrr í ár fann hann loksins kjarkinn til að gefa út sín eigin frumsömdu lög, og þetta Kominn inn er annað lagið sem hann gefur út. Undiraldan á Spotify