Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Landselurinn við Íslandsstrendur í útrýmingarhættu

Read Full Article →

Selasetur Íslands heldur utan um stærð selastofnsins við Íslandsstrendur í samstafi við Hafrannsóknastofnun. Einu sinni á ári er óformleg talning, Selatalningin mikla, þegar fólk gengur eftir strandlengjunni frá Reykjaskóla í Hrútafirði um 100 kílómetra leið að Sigríðarstaðavatni við Húnafjörð í Vestur-Húnavatnssýslu. Í ár sást 441 selur. Þeir voru 445 í fyrra en á árunum 2008-2010 voru þeir yfir þúsund. „Þetta er töluverð fækkun frá því að við byrjuðum með Selatalninguna miklu. Þá vorum við að selja um þúsund seli,“ segir Sandra Granquist deildarstjóri selarannsókna á Selasetrinu. 70% fækkun í stofninum Einnig er formlegra utanumhald og stofninn er metinn á nokkurra ára fresti. Það var fyrst gert 1980 og þá var stofninn um 33.000 dýr. Árið 2020 var hann 10.300 dýr. Stofninn verður eftur metinn í ár. „Þetta er sem sagt 70% fækkun. Landselsstofninn við Ísland er á válista yfir íslenska spendýrastofna og talinn vera í útrýmingarhættu. Það verður spennandi að vita hver niðurstaðan verður núna, það er langt síðan við gerðum stofnmat,“ segir Sandra. Engu að síður bjartsýn Á hverju ári drukknar fjöldi sela í netum grásleppusjómanna. Þá var markvisst fækkað í stofninum fyrir um 40 árum og hann er lengi að taka við sér þar sem hver urta kæpir aðeins einum kóp á ári. Sandra er þó bjartsýn á að stofninn taki við sér. „Það var kerfi til þess að fækka markvisst í selastofninum út af hringormi sem fer í nytjastofna eins og þorsk og landselurinn er hýsill fyrir,“ segir Sandra um meginástæðu mikillar fækkunar. Huga þurfi vel að talningu og utanumhaldi á næstu árum svo stofninn nái sér á strik.

Share this article