- What: Merging of Icelandic security and communication companies under Korda
- Impact: Strengthening national infrastructure security
Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar tekur formlega til starfa 1. september undir nafninu Korda. Þorvarður Sveinsson, sem er nú framkvæmdastjóri Farice, verður framkvæmdastjóri félagsins. Á ensku verður það kallað Korda Networks. Korda verður í fullri eigu ríkisins. Ákvörðun um sameiningu félaganna var kynnt í desember á síðasta ári. Farice ehf. og tæknihluti Neyðarlínunnar ohf. sameinast undir Korda ehf. Öryggisfjarskipti ehf. verður hins vegar rekið sem dótturfélag Korda. Greint er frá þessu í tilkynningu. Félagið annast rekstur mikilvægra fjarskipta- og öryggiskerfa Markmið sameiningarinnar er að styrkja rekstraröryggi, net- og upplýsingaöryggi og viðnámsþrótt mikilvægra innviða gagnvart netógnum, náttúruvá og rekstraráhættuþáttum. „Korda mun annast rekstur fjarskiptasæstrengja sem tengja Ísland við umheiminn, Tetra-öryggisfjarskiptakerfisins auk tæknilegra kerfa sem styðja við neyðarþjónustu, almannavarnir, sjófarendur, viðbragðsaðila, fjarskiptafyrirtæki, opinbera aðila og aðra mikilvæga starfsemi. Einnig rekur Korda varaleið fjarskipta við umheiminn um gervihnattakerfi,“ segir í henni. Þar segir að nafnið sé sótt í gamalgróið íslenskt orð sem merkir strengur. „Nafnið þykir eiga vel við þar sem félagið mun annast rekstur mikilvægra fjarskipta- og öryggiskerfa sem tengja Ísland við umheiminn, styðja við örugg samskipti innanlands og skapa tæknilegt bakland fyrir þjónustu sem samfélagið allt treystir á allan sólarhringinn.“